Ósátt við umferðarmálin í nýju skipulagi fyrir Skerjafjörð

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mót­mælti nýju ramma­skipu­lagi fyrir 1.200 íbúða byggð í Nýja Skerja­firði við Reykja­vík­ur­flug­völl. Ekki sé búið að fram­kvæma heild­stæða umferð­ar­grein­ingu og engar lausnir séu til að létta á fyr­ir­sjá­an­legri umferð á svæð­inu.

„Þetta bygg­ing­ar­magn er mun meira en upp­haf­lega var gert ráð fyrir þegar borgin keypti landið af rík­inu. Heild­stæð umferð­ar­grein­ing fyrir svæðið liggur ekki fyrir og engar nýjar lausnir til að létta umferð­ina,“ segir Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík um nýja til­lögu að ramma­skipu­lagi fyrir 1.200 íbúða byggð hjá Reykja­vík­ur­flug­velli, sem sam­þykkt hefur verið af Borg­ar­ráði.

[links]Kjarninn greindi frá sam­þykkt­inni í gær, en þar er einnig gert ráð fyrir nýjum skóla, verslun og þjón­ustu. Tillagan var sam­þykkt í Borg­ar­ráði með fjórum atkvæðum meiri­hluta­flokk­anna í Reykja­vík, Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Vinstri grænna gegn þremur atkvæðum borg­ar­ráðs­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lagði fram bókun á fund­inum þar sem fram kemur að þau telji upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis í vest­ur­hluta borg­ar­innar mjög mik­il­væga til að ná jafn­vægi í skipu­lagi og á hús­næð­is­mark­aði og gæta þess að hverfi séu sem mest sjálf­bær. „Það skýtur skökku við að gagn­rýna upp­bygg­ingu í Örfirisey á grund­velli umferða­mála en leggja hér fram til­lögu um allt að 3.000 manna byggð án heild­stæðs umferð­ar­mats. Ekki liggur fyrir heild­stæð umferð­ar­grein­ing á svæð­inu né heldur höf­uð­borg­ar­svæð­inu í heild. Um er að ræða þre­földun á hverf­inu og því nauð­syn­legt að greina áhrif þess,“ segir í bókun sjálf­stæð­is­manna.

Ramma­skipu­lagið lýtur að byggð í Nýja Skerja­firði og afmarkast af göt­unni Skelja­nesi til vest­urs en af örygg­is­svæði Reykja­vík­ur­flug­vallar til norð­urs og aust­urs. Við suð­ur­enda byggð­ar­innar er síðan strand­lengja Skerja­fjarðar.

Ramma­skipu­lag­inu er ætlað að vera leið­ar­ljós varð­andi upp­bygg­ingu byggðar á þró­un­ar­reit 5 í Aðal­skipu­lagi Reykja­víkur 2010-2030, en sá reitur nær yfir allan Reykja­vík­ur­flug­völl. Þannig verði hugsað fyrir teng­ingu hverf­is­ins við áfram­hald­andi upp­bygg­ingu í Vatns­mýri þegar flug­völl­ur­inn víkur það­an.

Í til­lög­unni er einnig gert ráð fyrir teng­ingu almenn­ings­sam­gangna við Kárs­nes í Kópa­vogi með bygg­ingu brúar yfir Foss­vog fyrir gang­andi, hjólandi og almenn­ings­sam­göng­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

umferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár