1.200 íbúða byggð í Nýja Skerjafirði samþykkt

Tillaga að ramma­skipu­lag fyrir byggð 1.200 íbúða hjá Reykja­vík­ur­flug­velli, auk skóla, versl­unar og þjón­ustu, hefur verið sam­þykkt af Borg­ar­ráði.

Nýja hverfið verður milli Reykjavíkurflugvallar og Skeljaness í Skerjafirði.
Nýja hverfið verður milli Reykja­vík­ur­flug­vallar og Skelja­ness í Skerja­firði. Mynd: Birgir Þór

Borg­ar­ráð sam­þykkti til­lögu að ramma­skipu­lag fyrir byggð 1.200 íbúða við Skerja­fjörð og Reykja­vík­ur­flug­völl. Í til­lög­unni er einnig gert ráð fyrir nýjum skóla, verslun og þjón­ustu. Þetta kemur fram í nýrri til­kynn­ingu Reykja­vík­ur­borgar.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni lýtur til­lagan að byggð í Nýja Skerja­firði og afmarkast af göt­unni Skelja­nesi til vest­urs en af örygg­is­svæði Reykja­vík­ur­flug­vallar til norð­urs og aust­urs. Við suð­ur­enda byggð­ar­innar er síðan strand­lengja Skerja­fjarðar.[adspot]

Ramma­skipu­lag­inu er ætlað að vera leið­ar­ljós varð­andi upp­bygg­ingu byggðar á þró­un­ar­reit 5 í Aðal­skipu­lagi Reykja­víkur 2010-2030, en sá reitur nær yfir allan Reykja­vík­ur­flug­völl. Þannig verði hugsað fyrir teng­ingu hverf­is­ins við áfram­hald­andi upp­bygg­ingu í Vatns­mýri þegar flug­völl­ur­inn víkur þaðan.

Í til­lög­unni er einnig gert ráð fyrir teng­ingu almenn­ings­sam­gangna við Kársnes í Kópavogi með bygg­ingu brúar yfir Fossvog fyrir gang­andi, hjólandi og almenn­ings­sam­göngur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár