Andvígur aðgerðum gegn hvalveiðum

Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra telur ótíma­bært að draga álykt­anir um nei­kvæð áhrif hval­veiða á íslenskan útflutn­ing, þrátt fyrir ábend­ingar sér­fræð­inga um að svo gæti verið.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs-og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs-og land­bún­að­ar­ráð­herra vill hvorki draga neinar álykt­anir né grípa til aðgerða gegn hugs­an­legum nei­kvæðum áhrifum hval­veiða á útflutn­ing ann­arra afurða. Þó hefur mögu­leiki um slíkt verið nefndur í skýrslum sem gerðar hafa verið fyrir ráðu­neytið, en ráð­herra telur þörf á nýrri og betri upp­lýs­ingum.

Þetta segir Kristján í svari sínu við fyr­ir­spurn Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur þing­manni Við­reisnar um hval­veiðar á Íslandi, sem birt­ist á vef Alþingis á dög­unum.

Engin ástæða til afturköllunar

Spurning Þor­gerðar var þrí­þætt, en fyrsti þátt­ur­inn sner­ist um mögu­leik­ann á aft­ur­köllun hval­veiði­leyfa Hvals hf. í sumar í ljósi heild­ar­hags­muna Íslands og lít­illar eft­ir­spurnar á hvala­af­urðum. Við því svar­aði ráð­herra að erfitt væri að aft­ur­kalla leyfið þar sem sýna þurfi að það muni ekki vera til tjóns fyrir Hval hf. sam­kvæmt lögum. Bann við hval­veiðar yrði aðeins mögu­legt með laga­setn­ingu sem byggi á efn­is­legum rökum, almanna­hags­munum og með­al­hófi, en ráð­herra telur slíkt ekki liggja fyrir á þess­ari stundu.

Þor­gerður spurði einnig Kristján hvort ástæða væri til að ótt­ast nei­kvæð áhrif hval­veiða á við­skipti með íslenskar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­vörur og hvort hann væri til­bú­inn að grípa til aðgerða gegn þeim ef svo væri. Kristján taldi ótíma­bært að draga álykt­anir um slíkt og seg­ist þurfa nýjar upp­lýs­ingar, en bætir þó við að Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands taldi þjóð­hags­lega hag­kvæmt að halda hval­veiðum áfram í skýrslu sinni frá 2010.

Geti haft áhrif á ímynd þjóðar

Kristján tók þó ekki fram að skýrsla Hag­fræði­stofn­unnar reikn­aði ekki hugs­an­leg áhrif hval­veiða á útflutn­ing ann­arra afurða. Hins vegar er bent á í skýrsl­unni að nei­kvæð umfjöllun um hval­veiðar í erlendum fjöl­miðlum geti haft áhrif á ímynd lands og þjóðar og hugs­an­lega skemmt fyrir mark­að­setn­ingu afurða á erlendri grundu.

Í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar kemur einnig fram að end­ur­meta þurfi þjóð­hags­leg áhrif hval­veiða komi síðar í ljós að þau hafi nei­kvæð áhrif á ímynd Íslands út á við. Kristján tekur undir þörf á end­ur­mati í svari sínu, en þar seg­ist hann hafa óskað eftir því að Hag­fræði­stofnun upp­færi skýrsl­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár