Nýjar tegundir greiðsluþjónustu væntanlegar

Seðla­bank­inn býst við að nýjar teg­undir greiðslu­miðl­unar muni líta dags­ins ljós í kjöl­far inn­leið­ingar á nýrri til­skipun ESB.

Seðla­bank­inn spáir fyrir meira fram­boði óhefð­bund­inna greiðslu­lausna og auk­inni hag­kvæmni í kjöl­far nýrrar til­skip­unar Evr­ópu­sam­bands­ins, sem inn­leidd verður fljót­lega á Íslandi. Hins vegar muni reiðufé lík­lega halda áfram að gegna mik­il­vægu hlut­verki á Íslandi, þrátt fyrir fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar. Þetta kemur fram í nýjasta tíma­riti Fjár­mála­inn­viða Seðla­bank­ans.

Til­skip­unin, sem kölluð er PSD2, er upp­færsla á sam­ræmdu reglu­verki í kringum greiðslu­þjón­ustu á Evru­svæð­inu. Upp­færslan á að taka til­lit til nýrra leiða í staf­rænni þjón­ustu og greiða fyrir nýsköpun á þeim vett­vangi, sam­hliða því að bæta öryggi neyt­enda. [adspot]

Samkvæmt Seðla­bank­anum eru helstu breytigar sem PSD2 hefur í för með sér ný teg­und greiðslu­þjón­ustu sem gerir þjón­ustu­fyr­ir­tækjum á net­inu kleift að virkja greiðslu beint við banka neyt­enda, án færslu­hirðis sölu­að­ila og kredit­kor­ta­kerfi. Í skýrsl­unni segir að þessi þróun kunni að leiða til auk­innar hag­kvæmni í raf­rænni smá­greiðslu­miðlun. Hins vegar væri brýnt að efla vit­und neyt­enda í þessum efnum og mik­il­vægt að við­eig­andi stjórn­völd stuðli að þeirri vit­und­ar­vakn­ingu.

Útskýr­ing á breyt­ingum í kjöl­far PSD2 lög­gjaf­ar­innar. Heimild: Starling Bank.

Kreditkortin þjóðhagslega óhagkvæm

Kredit­korta­notkun á Íslandi er mun algeng­ari en í öðrum ríkjum Evrópu, en sam­kvæmt Seðla­bank­anum er kostn­aður sam­fé­lags­ins af þeim meiri en vegna debet­korta. Kredit­kortum fylgi milli­gjöld og minna gagn­sæi í við­skiptum, en öllum færslu­gjöldum sé að öllum lík­indum velt út í verð­lag. Því mætti búast við lækkun á verði fjár­mála­þjón­ustu nái aðrir greiðslu­mögu­leikar að keppa við kredit­korta­þjón­ustu.

Reiðufé þó enn vinsælt

Þrátt fyrir fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar í greiðslu­miðlun gerir Seðla­bank­inn þó ráð fyrir því að reiðufé muni enn eiga veiga­mik­inn þátt á Íslandi á næstu árum. Í lok árs 2017 var virði reiðu­fjár í umferð á Ísland um 60 millj­arðar íslenskra króna, eða 2,4% af vergri lands­fram­leiðslu. Hlut­fallið er lágt í alþjóð­legum sam­an­burði, en sams konar hlut­fall á Evru­svæð­inu er yfir 10% og yfir 12% í Sviss. Þrátt fyrir lágt hlut­fall reiðu­fjár af lands­fram­leiðslu hefur það hækkað umtals­vert frá hruni, en á árunum 1985-2007 var það í kringum 1%, eða helm­ingi lægra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár