Formaður BSRB hættir í haust

Nýr for­maður verður kjör­inn á þingi BSRB í októ­ber. Elín Björg Jóns­dóttir, sem hefur verið for­maður banda­lags­ins í níu ár, mun ekki gefa áfram kost á sér.

Elín Björg Jóns­dóttir, for­maður BSRB, til­kynnti stjórn banda­lags­ins í morgun að hún muni ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri á þingi þess sem fram fer í októ­ber næst­kom­andi. Elín Björg mun þó gegna starf­inu áfram þar til að nýr for­maður verður kjör­inn. Með því að til­kynna félögum sínum um ákvörð­un­ina vill Elín Björg hún þeim sem gætu haft áhuga á að bjóða sig fram tíma til að und­ir­búa fram­boð sitt.

Hún hefur verið for­maður BSRB í tæp níu ár og í til­kynn­ingu segir hún að verk­efnin á und­an­förnum árum hafi verið bæði gef­andi og krefj­andi. Það hafi verið Elínu Björgu mikil ánægja að hafa fengið að sinna þeim verk­efnum sem henni voru falin.

Banda­lagið hafi á und­an­förnum árum tek­ist á við mörg stór og mik­il­væg mál. „Það hefur verið ánægju­legt að sjá þann árangur sem við höfum náð. Það er mín skoðun að það sé hollt fyrir banda­lagið að end­ur­nýja for­yst­una reglu­lega og í því ljósi tók ég þá ákvörðun að stíga til hliðar á þing­inu okkar í haust.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár