Hlutfallslega flestir strikuðu yfir Eyþór

Þrjú pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Reykja­vík um helg­ina strik­uðu yfir odd­vit­ann Eyþór Arnalds. Yfir­kjör­stjórn hefur lokið yfir­ferð sinni yfir breytta kjör­seðla.

Hlut­falls­lega flestir strik­uðu yfir odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Eyþór Arnalds, í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum á laug­ar­dag­inn sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans. Eva B. Helga­dóttir for­maður yfir­kjör­stjórnar í Reykja­vík stað­festir að kjör­stjórnin hafi lokið yfir­ferð sinni á breyttum listum á kjör­seðl­unum.

Alls fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 18.146 atkvæði og þar af var 701 þeirra breytt eða 3,9 pró­sent. Algeng­ustu breyt­ing­arnar voru þær að strika yfir Eyþór Arnalds odd­vita eða 503 kjós­endur flokks­ins, sem gera 3 pró­sent.

Sam­fylk­ingin fékk 15.260 atkvæði. Þar af breyttu 426 seðl­inum eða 2,8 pró­sent. Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri fékk 15.183 atkvæði í fyrsta sæti list­ans. Þannig virð­ast 0,5 pró­sent kjós­enda flokks­ins hafa viljað annan ein­stak­ling í fyrsta sætið.

Viðreisn fékk 4.812 atkvæði, þar af voru 134 breyttir seðlar eða 2,8 pró­sent.

Píratar fengu 4.556 atkvæði, 58 kjós­endur breyttu kjör­seðli sínum eða 1,3 pró­sent.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn fékk 3.758 atkvæði, 17 breyttu seðlum sínum eða 0,45 pró­sent.

Mið­flokk­ur­inn hlaut 3.615 atkvæði, 55 þeirra var breytt eða 1,5 pró­sent.

Vinstri hreyf­ingin - grænt fram­boð fékk 2.700 atkvæði. Af þeim breyttu 31 kjör­seðl­inum eða 1,1 pró­sent. Alls strik­uðu 14 kjós­endur flokks­ins yfir Líf Magneu­dóttur odd­vit­ann.

Flokkur fólks­ins fékk 2.509 atkvæði og var 32 þeirra breytt eða 1,28 pró­sent.

Aðrir flokkar komu ekki ein­stak­lingum að í borg­ar­stjórn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár