Öll 16 framboðin gild

Yfir­kjör­stjórn Reykja­víkur taldi öll 16 fram­boðin gild sem skilað höfðu inn listum fyrir næst­kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

Ráðhús Reykjavíkur.
Ráðhús Reykja­víkur. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Öll 16 fram­boðin sem skil­uðu in listum til borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga voru úrskurðuð gild af Yfir­kjör­stjórn Reykja­víkur. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu kjör­stjórn­ar­innar í dag.

Fram­boðs­frestur til kosn­ing­anna rann út um hádegi í gær, en Kjarninn greindi frá því í gær að 16 af 17 hugs­an­legum fram­boðum skil­uðu inn fram­boðs­listum innan tíma­tak­marka. Fram­boðs­lista svo­kall­aðs Kalla­lista Karls Th. Birg­is­sonar var ekki skilað á til­teknum tíma, en Edda Björg Eyj­ólfs­dóttir leik­kona, Karl Ægir Karlsson pró­fessor og séra Davíð Þór Jónsson voru meðal ann­ars orðuð við list­ann.

Samkvæmt síð­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar þann 27. Apríl síð­ast­lið­inn var búist við að sjö þess­ara 16 fram­boða myndu ná inn borg­ar­full­trúa, en greina mátti þó hraða fjölgun þeirra sem höfðu hugsað sér að kjósa óhefð­bund­ari flokka.

Endanlegir framboðslistar til borgarstjórnarkosninga eru eftirfarandi:

  • B-listi Fram­sókn­ar­flokks­ins
  • C-listi Við­reisnar
  • D-listi Sjálf­stæð­is­flokks­ins
  • E-listi Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar
  • F-listi Flokks fólks­ins
  • H-listi Höf­uð­borg­ar­list­ans
  • J-listi Sós­í­alista­flokks Íslands
  • K-listi Kvenna­hreyf­ing­ar­innar
  • M-listi Mið­flokks­ins
  • O-listi Borg­ar­innar okkar - Reykja­víkur
  • P-listi Pírata
  • R-listi Alþýðu­fylk­ing­ar­innar
  • S-listi Sam­fylk­ing­ar­innar
  • V-listi Vinstri­hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs
  • Y-listi Karla­list­ans
  • Þ-listi Frels­is­flokks­ins
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár