Ólöf Magnúsdóttir oddviti Kvennahreyfingarinnar

Kvenna­hreyf­ingin til­kynnti í dag fram­boðlista sinn til sveita­stjórn­ar­kosn­inga. Þar skipar Ólöf Magn­ús­dóttir þjóð­fræð­ingur fyrsta sæti.

Frá blaðamannafundi Kvennahreyfingarinnar í dag.
Frá blaða­manna­fundi Kvenna­hreyf­ing­ar­innar í dag. Mynd: Kvennahreyfingin

Ólöf Magn­ús­dóttir, þjóð­fræð­ingur, er odd­viti Kvenna­hreyf­ing­ar­innar sem hyggst bjóða sig fram til kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga. Með henni á lista eru meðal ann­ars Steinunn Ýr Ein­ars­dóttir fyrrum fram­bjóð­andi Sam­fylk­ing­ar­innar og Steinunn Ólína Haf­liða­dóttir. Þetta kemur fram í nýrri frétta­til­kynn­ingu hreyf­ing­ar­innar.

Samkvæmt Kvenna­hreyf­ing­unni hafa und­an­farnar sam­fé­lags­bylt­ingar, líkt og #metoo, #höf­um­hátt, og #karl­mennskan sýnt að það sé knýj­andi þörf á að umturna íslenskri sam­fé­lags­gerð. Þar sem þau stjórn­mála­öfl sem fyrir séu ætli sér ekki að setja þessi mál í for­gang ætli Kvenna­hreyf­ingin að knýja fram breyt­ingar og byrji á því með fram­boði sínu í Reykja­vík.

„Áfram­hald­andi ofbeldi gegn konum, börnum, fötl­uðu fólki, inn­flytj­endum, hinsegin fólki og öðrum jað­ar­hópum á ekki að líð­ast í nokk­urri ein­ustu mynd,“ segir meðal ann­ars í stefnu­yf­ir­lýs­ingu hreyf­ing­ar­innar.

Samhliða stefnu­yf­ir­lýs­ingu birti Kvenna­hreyf­ingin einnig aðgerða­á­ætlun, en sam­kvæmt henni mun hún nálg­ast öll umræðu­efni kosn­inga­bar­átt­unnar út frá fem­inísku sjón­ar­horni. Í borg­ar­stjórn muni hún standa fyrir umbótum og breyt­ingum í þágu raun­veru­legs jafn­réttis í Reykja­vík og gegn ákvörð­unum sem kunna að koma illa við konur og/eða jað­ar­setta hópa.

Framboðslisti Kvennahreyfingarinnar er eftirfarandi:

  1. Ólöf Magn­ús­dóttir Þjóð­fræð­ingur, nýskap­ari og leið­sögu­kona
  2. Steinunn Ýr Ein­ars­dóttir Kennari
  3. Nazanin Askari, Túlkur
  4. Hanna Björg, Vil­hjálms­dóttir Kennslu­kona
  5. Steinunn Ólína Haf­liða­dóttir, Háskóla­nemi
  6. Svala Hjör­leifs­dóttir, Graf­ískur hönn­uður
  7. Þóra Kristín Þórs­dóttir, Aðferða­fræð­ingur
  8. Bára Jóhann­es­dóttir Guð­rún­ar­dóttir, Sér­fræð­ingur
  9. Andrea Eyland, Höfundur
  10. Eva Huld Ívars­dóttir, Meist­ara­nemi í lög­fræði
  11. Aðal­heiður Ármann, Háskóla­nemi
  12. Bylgja Babýlons, Grínisti
  13. Anna Kristín Gísla­dóttir, Frí­stunda­leið­bein­andi
  14. Hera Eiríks­dóttir, Hansen Ráð­stefnu­stjóri
  15. Pálmey Helga­dóttir, Kvik­mynda­gerða­kona
  16. Sunnefa Lindu­dóttir, Hjúkr­un­ar­fræð­ingur, deild­ar­stjóri
  17. Guðfinna Magnea Clausen, Sjúkra­liði / hóp­stjóri
  18. Þórdís Erla Ágústs­dóttir, Ljós­mynd­ari, kenn­ari og leið­sögu­maður
  19. Sigrún H. Gunn­ars­dótt­irm, Ljós­móðir og hjúkr­un­ar­fræð­ingur
  20. Erna Guðrún Fritzdóttir, Dansari
  21. Þórunn Ólafs­dóttir, Verk­efna­stjóri og stofn­andi Akkeris
  22. Edda Björg­vins­dóttir, Leikkona
  23. Inga María Vil­hjálms­dóttir, Verk­efna­stjóri / félags­ráð­gjafi
  24. Nichole Leigh Mosty, Verk­efna­stjóri
  25. Hekla Geirdal, Barþjónn
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár