Íslenskir stúdentar eru lengur að klára háskólanám en stúdentar í Evrópu

Í nýrri skýrslu EUROSTUDENT kemur fram að háskóla­nemar á Íslandi vinna hvað mest með námi og náms­tími háskóla­nema er lengri. Elísa Björg Gríms­dóttir lána­sjóðs­full­trúti Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands segir LÍN ekki styðja nógu vel við háskóla­nema.

Með­al­aldur háskóla­nema á Íslandi er hæstur á í Evrópu og íslenskir háskóla­nemar eru lengur að klára háskóla­nám en háskóla­nemar í Evrópu. Þetta kemur fram í skýrslu EUROSTUDENT sem kom út í apríl.

Stúd­entar hafa ítrekað bent á að kjör þeirra eru ekki nógu góð og að sam­an­borið við Norð­ur­löndin standi íslenskir stúd­entar höllum fæti. Fram­færslu­lán til stúd­enta frá Lána­stofnun íslenskra inn­lendra náms­manna er um 92 pró­sent af grunn­fram­færslu­við­miðum, en kemur til með að hækka upp í 96 pró­sent fyrir skóla­árið 2018-2019.

Frí­tekju­markið er 930 þús­und krónur en það hefur staðið í stað frá árinu 2014 en á þessum árum hafa laun í land­inu hækkað um 38% að með­al­tali. Engir afslætti standa stúd­entum til boða ef þeir klára nám á til­skyldum tíma með við­un­andi ein­kunn. Til þess að fá það lán sem stúd­ent sótti um þarf hún að ná þeim ein­ingum sem hún sótti um, og að lág­marki 22 ein­ingar ef hún ætlar að fá eitt­hvað greitt út.

60 prósent telja sig búa við mjög alvarlegan fjárhagsvanda

„LÍN styður ekki nógu vel við háskóla­stúd­enta í dag þar sem fram­færslan dugar ekki stúd­entum til að fram­fleyta sér út mán­uð­inn, en hún er undir grunn­fram­færslu­við­miði vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. Þetta veldur því að stúd­entar neyð­ast oftar en ekki til að vinna sam­hliða skóla til þess að ná endum saman,“ segir Elísa Björg Gríms­dóttir, nýkjör­inn lána­sjóðs­full­trúi Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í nýút­gef­inni skýrslu EUROSTUDENT ásamt því að Íslend­ingar vinni mest allra Evr­ópu­þjóða sam­hliða námi og eru lengur að klára námið.

Einnig kemur fram í skýrsl­unni að Íslandi er hæsti með­al­aldur meðal háskóla­nema. „Þar segir enn fremur að meira en 60% þeirra sem styðj­ast við rík­is­bund­inn náms­stuðn­ing, telja sig búa við mjög alvar­leg fjár­hags­leg vanda­mál. Það er lang hæst af öllum þátt­tök­u­löndum.“ segir Elísa.

„Það má segja að það sé til staðar ákveðið hvata­kerfi í núver­andi lána­sjóðs­kerfi við láns­hæfar ein­ingar en núna lánar LÍN aðeins fyrir 480 ETCS, þ.e.a.s. þú getur ekki fengið lánað fyrir enda­lausu námi - sem hægt er að túlka sem ákveð­inn hvata til að klára námið, en væri einnig hægt að túlka sem hvata til að vera sem lengst í námi. Fram­kvæmd­ar­stjóri LÍN hefur talað um að það sé hvati í kerf­inu til að vera sem lengst í námi og taka sem mest lán því þegar fólk er á annað borð komið með hátt lán, yfir tíu til fimmtán millj­ónir, þá borg­arðu ekki meira þó þú skuldir mikið og hluti láns­ins verður að styrk sem fólk borgar aldrei til baka.“

Tak­markað magn af rann­sóknum eru til­tækar til að skýra hvers vegna brott­fall verður. Hrefna Hjart­ar­dóttir skoð­aði í loka­verk­efni sínu til meistara­gráðu í hag­nýtri töl­fræði brott­fall úr nám­skeið­inu hag­nýt stærð­fræði­grein­ing. Nám­skeiðið var inn­gangs­nám­skeið í tölv­un­ar­fræði, lyfja­fræði og líf­efna­fræði. Hún skoð­aði brott­fall úr nám­skeið­inu haustið 2012. Þá voru 484 skráðir í nám­skeiðið, en aðeins helm­ingur lauk áfang­anum. Fjórð­ungur hóf ekki nám þrátt fyrir að vera skráður og fjórð­ungur hætti í áfang­anum. Brott­fallið var nokkuð jafnt og þétt yfir önn­ina en flestir hættu þó á fyrstu fimm vikum ann­ar­innar. Nemendur á fyrsta ári hættu frekar í áfang­anum og nem­endur í tölv­un­ar­fræði og líf­efna­fræði voru lík­legri til að hætta.

Margir áfangar á fyrsta ári eru gríð­ar­lega erf­iðir og leggja miklar kröfur á nem­endur. Hagnýt stærð­fræði­grein­ing er einn af þeim áföngum og eins og rann­sókn Hrefnu gefur til kynna, eru nem­endur á fyrsta ári lík­legri til að hætta í áfang­anum.

Ekki eru til tölur um hversu margir af þeim sem hætta í áfang­anum hætta í skól­anum. Ef aðeins 50% ljúka áfang­anum má gera ráð fyrir að ein­hver hluti, á bil­inu 10-20% hafi fallið. Þeir nem­endur skrá sig svo haustið eftir í áfang­ann og eru þá lík­legri til að ná honum þegar þeir eru komnir á annað ár.

Í lög­fræð­inni er bæði inn­töku­próf og síu áfan­gangar, almenn lög­fræði og inn­gangur að lög­fræði. Ein­stak­lingur kemst ekki inn í námið nema ná lág­marks ein­kunn á A-prófi. Á fyrsta ári eru tveir áfangar sem nem­andi þarf að ljúka til að mega halda áfram á annað ár.

Núverandi kerfi hvetur nemendur til að vinna með skóla

„Betra hvata­kerfi gæti mögu­lega spornað við brott­falli en við höfum engin gögn sem segja til um fylgni milli LÍN og brott­falls, en það myndi lík­lega hafa jákvæð áhrif að breyta núver­andi kerfi með því að setja á fót ein­hvers­konar hvata­kerfi. Núver­andi lána­sjóðs­kerfi ,,hvetur” fólk frekar til þess að vinna með skóla og taka færri ein­ingar í senn, fremur en að sinna ein­ungis nám­inu sem lengir því náms­tím­ann. Til­gangur hvata­kerfis er að styðja við stúd­enta og ætti að vera til þess fall­inn að stúd­entar ná að klára námið á til­settum tíma.“ segir Elísa.

Elísa segir að hvata­kerfið þyrfti að bjóða upp á ákveðið svig­rúm og tekur dæmi um norska lána­kerfið. Í Noregi þarf náms­maður að klára ákveð­ins tímara­mma til að fá nið­ur­fell­ingu á hluta láns­ins sem getur verið allt að 40 pró­sent.

Um 7300 manns sóttu um skóla­vist í Háskóla Íslands fyrir skóla­árið 2017-2018, en um fjögur þús­und útskrif­uð­ust með stúd­ent­próf um ára­mótin 2016-2017 og vorið 2017. Í vor eru fram­halds­skólar í fyrsta skipti að útskrifa þá nem­endur sem ljúka námi á þremur árum. Samhliða því munu nem­endur sem ljúka námi á fjórum árum útskrif­ast. Það er því ljóst að háskól­arnir munu þurfa að taka við auknum fjölda nem­enda á næstu tveimur árum. Algengt er að nem­endur taki sér eitt ár í pásu og ferð­ist um heim­inn eða safni pen­ingum fyrir námi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skólamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár