Ekki augljós tengsl milli smitaðra í Háskóla Íslands

Rektor Háskóla Íslands segir mjög mik­il­vægt að fleiri úr háskóla­sam­fé­lag­inu fari í skimun hjá Íslenskri erfða­grein­ingu til að kort­leggja megi þau smit sem upp hafa komið meðal fimm starfs­manna skól­ans.

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir mikilvægt að komast að því hvernig starfsmenn Háskóla Íslands smituðust.
Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, segir mik­il­vægt að kom­ast að því hvernig starfs­menn Háskóla Íslands smit­uð­ust. Mynd: Kristinn Ingvarsson/Háskóli Íslands

Fimm starfs­menn Háskóla Íslands, sem störf­uðu í fjórum bygg­ingum skól­ans, hafa greinst með kór­ónu­veirusmit. Í skimun Íslenskrar erfða­grein­ingar, sem hófst í skól­anum í gær, greind­ist þó aðeins einn af um 450 sem voru skimaðir með smit. Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, segir það vissu­lega góðar fréttir en að áhyggjur skóla­yf­ir­valda snúi að því að ekki séu sýni­leg tengsl milli þeirra sem hafa greinst með veiruna innan háskól­ans. Fólkið sé ekki í nánu sam­starfi. Því segir hann gríð­ar­lega mik­il­vægt að sem flestir af nem­endum og starfs­mönnum skól­ans fari í skimun hjá Íslenskri erfða­grein­ingu líkt og þeir hafa fengið boð um.

„Fleiri þurfa að fara í skimun svo hægt sé að kort­leggja þetta betur,“ segir Jón Atli í sam­tali við Kjarnann í morgun. Hann var þá að koma af fundi neyð­ar­stjórnar háskól­ans sem fund­aði dag­lega í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins en hefur fundað sjaldnar upp á síðkastið. Það breyt­ist héðan í frá og er stefnt að tíð­ari fundum neyð­ar­stjórnar á ný. Næsti fundur hennar verður strax á morgun.

[adspot]

Hann segir enn ekki full­víst hvort að fólkið sem um ræðir hafi smit­ast í háskól­anum eða hvort að það hafi smit­ast ann­ars staðar. Þá veit hann ekki heldur hvort að öll smitin séu ný eða hvort að um gömul smit sé að ræða.

[links]Jón Atli segir að allt frá því að haust­miss­eri hófst hafi verið lögð mikil áhersla á sótt­varnir og fjar­lægð­ar­mörk milli fólks. Þá er reynt að tryggja ítar­leg þrif eins og kostur er. Hvort gripið verði til frek­ari aðgerða en þegar hefur verið gert er svo að sögn Jóns Atla í sífelldri skoðun. „Við erum með til­mæli um að fundir séu sem mest á net­inu, kennslan er svo að grunni til raf­ræn en við viljum hafa eitt­hvert stað­nám og þá sér­stak­lega fyrir nýnema. Við höfum ekki breytt þessum áherslum en við erum til­búin í það ef þarf.“

Jón Atli segir starfs­menn háskól­ans finna fyrir því að nem­endur séu áhyggju­fullir. Háskóli sé sam­fé­lag og í ástandi eins og því sem nú ríki sé erfitt að halda utan nem­end­urna. Þess vegna hafi verið ákveðið að bjóða nýnemum í stað­nám því þeirra tengsl inn í háskóla­sam­fé­lagið eru minni en eldri nem­enda. „En málið er að þetta er erfitt og þetta getur leitt til auk­ins brott­falls sem við viljum auð­vitað ekki sjá. Við reynum að mæta þessu eins vel og við getum en við vitum að aðstæður nem­enda eru víða ekki góðar.“

Jón Atli vonar að frek­ari skimun geti varpað ljósi á tengsl starfs­mann­anna sem greinst hafa með veiruna. Kort­lagn­ing á því sé mjög mik­il­væg.

„Við fögnum því að þessi skimun sé í gangi og þökkum Kára [Stef­áns­syni] og Íslenskri erfða­grein­ingu inni­lega fyrir,“ segir Jón Atli. „En við þurfum að ná að kom­ast að því hvernig smitin tengj­ast, það er mjög mik­il­vægt. Ég hvet því ein­dregið fólk innan Háskóla Íslands að fara í skimun sem þeim býðst hjá Íslenskri erfða­grein­ingu í dag og á morgun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár