Kári leggur til að öldurhús verði lokuð um helgina

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, segir fulla ástæðu til að herða tak­mark­anir inn­an­lands vegna hraðrar fjölg­unar smita síð­ustu sól­ar­hringa. Sú aðgerð sem hefði mest áhrif væri lík­lega sú að loka öld­ur­húsum í land­inu um helg­ina.

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar. Mynd: Bára Huld Beck

Það er aðeins eitt atriði sem er algjör­lega öruggt segir Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, spurður hvað geti skýrt 32 ný smit af kór­ónu­veirunni síð­ustu tvo sól­ar­hringa: „Veiran virð­ist hafa miklu meiri dreif­ingu í sam­fé­lag­inu heldur en að við von­uð­umst til.“

Fjöldi nýgreindra smita er „ansi mik­ill“ og ein­stak­ling­arnir tengj­ast ekki allir þó að ein­hverjir þeirra hafi tengsl. Íslensk erfða­grein­ing hefur hafið umfangs­mikla skimun meðal nem­enda og starfs­fólks Háskóla Íslands. Í gær voru sýni tekin frá um 450 manns í skól­anum en aðeins einn reynd­ist sýktur. Þannig að hinir átján sem greindust í gær voru ein­stak­lingar sem beðið höfðu um sýna­töku vegna ein­kenna.

Þeir sem greinst hafa síð­ustu daga eru að sögn Kára með mikið veiru­magn sem gefur vís­bend­ingu um tvennt: Að stutt sé síðan þeir sjálfir smit­uð­ust og þar af leið­andi mjög smit­andi og í „aðstöðu til að dreifa þessu víða,“ að sögn Kára.

Honum finnst fullt til­efni til að herða tak­mark­anir inn­an­lands til að bregð­ast við fjölg­un­inni. „Mér finnst að við eigum að bregð­ast hratt við og setja stíf­ari tak­mark­anir sem við svo afléttum mjög fljótt ef ástandið fer að skána. Af því að stór hluti af þessum smitum er að koma upp hjá ungu fólki þá myndi ég til dæmis leggja til að öld­ur­húsum sam­fé­lags­ins yrði lokað yfir þessa helgi. Það væri lík­lega sú aðgerð sem hefði mest áhrif.“

Nýtt afbrigði komið upp

Sjö þeirra sem greindust í fyrra­dag reynd­ust hafa smit­ast af öðru afbrigði veirunnar heldur en hefur verið hvað skæð­ast hér á landi síðan í sumar. Þetta afbrigði hafði reyndar áður sést hér á landi í tveimur frönskum ferða­mönnum sem hingað komu nýverið. Samkvæmt því sem Kári kemst næst er talið að sjömenn­ing­arnir teng­ist með þeim hætti að þeir hafi allir verið á sama stað á svip­uðum tíma. Óvíst hvort að hið nýja afbrigði hafi dreift sér út fyrir þennan hóp því enn er verið að rað­greina sýni sem tekin voru í gær.

[links]„Mér finnst mjög ólík­legt að það hafi nokkuð smit borist inn í landið eftir að tvö­föld skimun var tekin hér upp 19. ágúst,“ segir Kári, „ekki nema að ein­hver hafi brotið skil­mála sótt­kvíar en mér finnst það ekki lík­legt.“

Spurður hvernig þetta afbrigði veirunnar hafi þá kom­ist hingað segir hann lík­legt að smit hafi verið „kraum­andi undir yfir­borð­inu“ áður en tvö­föld skimun með nokk­urra daga sótt­kví var tekin upp við landa­mærin.

Aðeins um helm­ingur þeirra sem smit­ast af veirunni verða veikir. Því getur veiran flust mann fram af manni án þess að þeir ein­stak­lingar finni ein­kenni og átti sig á því að þeir séu smit­aðir. Kári tekur sem dæmi að ef fjög­urra manna smit­keðja hafi byrjað fyrir 19. ágúst þá séu lík­urnar á því að allir þeir ein­stak­lingar hafi verið ein­kenna­lausir 1 á móti sextán. „Og það eru ekk­ert litlar líkur.“

Ekki óviðráðanlegt

„Þetta kvik­indi er gætt þeim eig­in­leikum að það getur dreifst hér víða án þess að menn verði varir við það en svo allt í einu gýs þetta upp á yfir­borðið,“ segir Kári um hversu lúmsk veiran getur verið.

Hann vill þó alls ekki meina að vand­inn sé óvið­ráð­an­legur. Þegar litið sé til ann­arra landa í dag sé ljóst að allt annað en auð­velt sé að „takast á við þessa skepnu en saga far­ald­urs­ins á Íslandi er nær því að vera saga um við­ráð­an­legan far­aldur heldur en nokk­urs staðar ann­ars staðar í heim­inum. En þetta er samt erfitt og við verðum að vera á tánum og vinna hratt.“

Spurður út í þá orð­ræðu sem stundum heyr­ist þegar smitum fjölgar á Íslandi að fyrst slíkt sé að ger­ast séu harðar aðgerðir á landa­mærum til­gangslitlar og jafn­vel til­gangs­lausar. Kára finnst þær rök­semdir að fyrst það sé smit í sam­fé­lag­inu sé í lagi að hafa meira smit í sam­fé­lag­inu „ótrú­lega heimsku­legar“.

Þau smit sem nú eru að grein­ast hafi að hans mati lík­leg­ast öll borist hingað til lands fyrir hinar hertu tak­mark­anir á landa­mærum. Markmið aðgerð­anna sé að minnka lík­urnar á því að smit ber­ist inn í landið „og leggi allt á hlið­ina“. Smitum fari hratt fjölg­andi í lönd­unum í kringum okkur, þeim löndum sem flestir ferða­menn koma frá. Ef slakað yrði á landamæra­að­gerðum gæti það þýtt að stór hluti þjóð­ar­innar þyrfti með auknum fjölda smita að fara í sótt­kví. Hann bendir enn­fremur á að ef nýgengi smita hér á landi fari yfir 20 á 100 þús­und íbúa á tveimur vikum þá myndu mörg lönd loka á okkur. „Jafnvel sú hug­mynd að það væri að halda uppi ferða­þjón­ustu á meðan allt annað væri á hlið­inni stenst ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár