Kæri nemandi, má bjóða þér félagslega einangrun eða farsótt?

For­eldrar víða um Banda­ríkin hafa stofnað skóla­hópa og örskóla og ráðið kenn­ara til að kenna börnum í litlum hópum. Þannig fái þau góða kennslu og félags­lega örvun en séu í minni smit­hættu. En þessi þróun gæti skapað ný vanda­mál og ýtt undir mis­munun.

Skólabörn í Bandaríkjunum fá fæst að ganga inn í skólabyggingar í haust heldur verður kennslan á netinu. Foreldrum líst ekki á blikun og þeir sem hafa efni á huga nú að því að ráða kennara og taka börn sín úr skólunum en koma þeim þess í stað í skólahópa.
Skóla­börn í Banda­ríkj­unum fá fæst að ganga inn í skóla­bygg­ingar í haust heldur verður kennslan á net­inu. For­eldrum líst ekki á blikun og þeir sem hafa efni á huga nú að því að ráða kenn­ara og taka börn sín úr skól­unum en koma þeim þess í stað í skóla­hópa. Mynd: Pixabay

Þegar skóla­stjóri einn í San Francisco frétti af því að for­eldrar nem­enda hefðu reynt að bjóða vin­sælum kenn­urum skól­ans störf við sína eigin örskóla ákvað hún að sam­hliða fjar­kennslu verði nem­endum boðið að hitt­ast í litlum hópum utandyra, þrátt fyrir að yfir­völd í rík­inu boði að kennt skuli gegnum netið en skól­arnir sjálfir ekki opn­aðir. Þetta gerir hún til að reyna að hindra brott­fall úr skól­anum.

Aukin útbreiðsla kór­ónu­veirunnar í Banda­ríkj­unum hefur gert það að verkum að skóla­yf­ir­völd í grunn- og gagn­fræða­skólum í mörgum ríkjum hafa tekið ákvörðun um að kennsla í haust fari alfarið fram gegnum netið, í það minnsta fyrri hluta ann­ar­innar en sums staðar verða skólar ekki opn­aðir fyrr en um ára­mót í fyrsta lagi. Ekki er þó alveg ljóst hvernig opnun skól­anna verður háttað, hvernig verður kennt, hve margir mega vera í stofu eða hvort fjár­veit­ingar fást til að ráða fleiri kenn­ara til að hægt sé að kenna færri nem­endum í einu og halda uppi smit­vörnum. Mikil óvissa ríkir og for­eldrar kann­anir hafa sýnt að margir for­eldrar eru smeykir við að senda börn sín í skóla meðan kór­ónu­veiru­far­aldur er enn í gangi. En þeim finnst heldur ekk­ert spenn­andi að þau fái ekki að læra nema í gegnum netið.

Nýjar leiðir í kennslu að frumkvæði foreldra

Öll þessi ringul­reið hefur orðið til þess að for­eldrar leit­ast við að finna nýjar leiðir til að styðja við nám barna sinna utan skóla­kerf­is­ins. Svo­kall­aðir skóla­hópar (e. School pods) og örskólar (e. Microschools) hafa sprottið upp í mörgum ríkjum á síð­ustu vikum. Hug­myndin að baki þeim er að kenna börnum heima í stað þess að senda þau í fjar­kennsl­una sem rík­is­skól­arnir bjóða upp á. Þróunin er nokkuð hröð og áhug­inn virð­ist mik­ill, ótal hópar hafa verið stofn­aðir á sam­fé­lags­miðlum þar sem for­eldrar reyna að finna lausnir í sam­ein­ingu og ná saman um stofnun smærri hópa eða lít­illa for­eldra­rek­inna skóla. Nokkur fyr­ir­tæki hafa líka orðið til á skömmum tíma sem hafa þróað nokk­urs konar leit­ar­vélar til að hjálpa for­eldrum við að koma börnum sínum í réttan hóp og bjóða einnig upp á hug­búnað sem aðstoðar við skóla­haldið.

Ótti við einangrun og lélega kennslu

Það sem rekur for­eldra í Banda­ríkj­unum af stað í þessa vinnu eru áhyggjur af því að börn þeirra ein­angr­ist um of, fái ekki nægi­lega félags­lega örvun og læri ekki sam­skipti á sama hátt og ef þau færu í skóla í raun­heimum, þegar þeim er kennt svo lengi gegnum fjar­kennslu. Þá snúa áhyggj­urnar einnig að gæðum kennslu gegnum fjar­funda­búnað dag eftir dag.

Ólíkt heima­kennslu (e. Home schooling) þá er hug­myndin með skóla­hóp­unum og örskólum að samnýta kennslu­krafta, þannig að til dæmis geti eitt for­eldri fjórum til átta börnum í einu í sama skóla­hópnum eða ráð­inn verði einka­kenn­ari til að kenna hópnum. Þannig verði til litlir örskólar inni í hverfum sem börnin gangi í í stað þess að fara í sinn gamla skóla aftur í haust. For­eldrar deila svo kostn­aði við það að koma upp aðstöðu, greiða laun kenn­ara ef sú þjón­usta er keypt, kaupa náms­gögn og fleira.

Skóla­stjór­inn í San Francisco sem minnst var á í upp­hafi grein­ar­innar taldi að for­eldrar hefðu nokkuð til síns máls og vill því skipu­leggja skóla­hópa á vegum skól­ans frekar en að þeir verði til hjá for­eldrum. Þannig sé hægt að sinna félags­lega þætt­inum sam­hliða fjar­kennsl­unni og börnin ein­angr­ist síður. Rooftop-skól­inn ætlar því að bjóða upp á slíka hópa í þeirri von að for­eldrar ákveði að halda börnum sínum í skóla í stað þess að koma þeim í skóla­hóp eða örskóla. Skóla­stjór­inn, Nancy Bui, er nefni­lega sann­færð um að það verði aðeins börn þeirra vel stæðu sem hafi kost á því að kom­ast í slíka hópa, brott­hvarf úr skól­anum yrði því til að minnka fjöl­breytn­ina, og það vill hún ekki. Þá vill hún vit­an­lega ekki missa góða kenn­ara, og greip því til sinna ráða þegar for­eldrar reyndu að bjóða kenn­urum ný störf við einka­kennslu í örskóla. For­eldr­arnir höfðu meira að segja leigt íbúð til að nota undir kennsl­una.

Ekki skóli fyrir alla

Fræði­menn í mennta­vís­indum hafa svip­aðar áhyggjur og benda á að líkur séu til þess að svona hópar verði aðeins fyrir þá sem vel standa fyrir, bæði fjár­hags­lega og félags­lega.

Börn sem nú þegar eru jað­ar­sett af ein­hverjum ástæðum eða eiga erfitt upp­dráttar í skóla eru ekki talin lík­leg til að eiga gott aðgengi að skóla­hópum eða vera vel tekið í örskóla sem for­eldrar stýra. Þetta eru til dæmis börn með hegð­un­ar­vanda­mál, fatl­anir eða námsörð­ug­leika, líkt og bent er á í grein New York Times um málið.

Þá er talin hætta á að hópar verði eins­leitir þegar horft er til stöðu í sam­fé­lag­inu. Í grein Bloomberg er bent á að t.d. í fínni hverfum í San Francisco sé verð fyrir það að vera með barn í skóla­hóp eða örskóla á bil­inu 1.200 dalir upp í 2.500 dali eða sem nemur 160.000 til 340.000 krónum á mán­uði. Það gefur auga leið að börn sem koma frá tekju­litlum heim­ilum geta ekki tekið þátt. Sums staðar mun þó kostn­aður vera lægri, þó ekki mikið lægri en sem nemur um 80 þús­und krónum á mán­uði.

Flótti úr ríkisskólum gæti skapað fjárhagsvanda

Á bak við þau fyr­ir­tæki sem bjóða þjón­ustu fyrir skóla­hópana og örskól­ana eru gjarnan for­eldrar, sem sjálfir hafa verið að vand­ræð­ast með hvað eigi að gera í skóla­málum barna sinna. Áhyggjur for­eldr­anna eru skilj­an­legar og margir telja sig standa frammi fyrir von­lausum val­kostum. Enginn vill að barnið sitt ein­angr­ist félags­lega, það gæti haft slæm áhrif á það fyrir lífs­tíð. En þó svo að skól­arnir opni þegar líður á önn­ina, þá spyrja for­eldrar sig líka: vil ég senda barnið mitt í skól­ann, er það öruggur staður útfrá sótt­vörnum? Klemma for­eldra hefur því leitt þá að þess­ari lausn, að kenna börnum í smærri hópum. En þeir sem reka þessar skóla­hópa­leit­ar­vélar vilja gjarnan vinna með skóla­yf­ir­völdum, frekar en að flótti verði úr skóla­kerf­inu. Óvíst er þó nákvæm­lega með hvaða hætti það verður, en mögu­lega er hægt að finna lausnir í sam­ein­ingu.

Til mik­ils er að vinna fyrir skól­ana að hafa hraðar hendur og forða því að börn flykk­ist úr skól­unum. Í mörgum ríkjum fylgir fjár­magn hverju barni og því minnka fram­lög til þeirra skóla sem fækkar í.

Bent hefur verið á að nær væri að auka fram­lög til skól­anna svo þeir geti ráðið fleiri kenn­ara og jafn­vel bætt við sig hús­næði til að geta boðið kennslu í smærri hópum. Þannig verði hægt að gæta ítr­ustu var­úðar með smit­varnir en börnin fái þá félags­legu örvun sem þau þurfa án þess að for­eldrar þurfi að ótt­ast smit meira en í smærri kennslu­hóp utan skóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár