Rúmur hálfur milljarður í afslátt af námslánum frá því í fyrra

Frá því að ný lög um Mennta­sjóð náms­manna tóku gildi í fyrra hafa tæp­lega tvö þús­und manns fengið sam­tals rúman hálfan millj­arð í afslátt frá rík­inu vegna upp­greiðslu náms­lána. Hægt er að fá allt að 15 pró­sent afslátt af upp­greiðslu eldri lána.

Frá því að lög um Menntasjóð námsmanna tóku gildi síðasta sumar hefur verið hægt að fá allt að 15 prósenta uppgreiðsluafslátt hjá sjóðnum. Það hafa margir nýtt sér.
Frá því að lög um Mennta­sjóð náms­manna tóku gildi síð­asta sumar hefur verið hægt að fá allt að 15 pró­senta upp­greiðslu­af­slátt hjá sjóðnum. Það hafa margir nýtt sér. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Frá því að Mennta­sjóður náms­manna byrj­aði að bjóða upp á allt að 15 pró­senta upp­greiðslu­af­slátt vegna upp­greiðslu eldri lána og auka­inn­borg­ana á skulda­bréf hafa tæp­lega tvö þús­und manns fengið rúman hálfan millj­arð í afslátt frá stofn­un­inni fyrir að greiða upp náms­lán sín, sam­kvæmt svari sjóðs­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Upp­greiðslu­af­slátt­ur­inn var hækk­aður upp í allt að 15 pró­sent um mitt ár í fyrra með nýjum lögum um Mennta­sjóð­inn, sem áður hét Lána­sjóður íslenskra náms­manna. Samkvæmt Hrafn­hildi Ástu Þor­valds­dóttur fram­kvæmda­stjóra sjóðs­ins hafa auka­inn­borg­anir og upp­greiðslur til sjóðs­ins auk­ist frá því sem áður var, eftir að þessar breyt­ingar voru gerðar.

Nánar til­tekið hafa alls 1.923 ein­stak­lingar greitt upp náms­lán sín frá því að breyt­ing á afslátt­ar­kjör­unum tók gildi. Nemur veittur afsláttur vegna upp­greiðslna skulda­bréfa 480,3 millj­ónum króna en heild­ar­af­sláttur vegna auka­inn­borg­ana á skulda­bréf 36,7 millj­ónum króna.

Hærri lán – meiri afsláttur

Það fer eftir því hversu mikið fólk skuldar í náms­lán hversu hár afslátt­ur­inn verður, en þeir sem skulda meira fá hærri afslátt.

Ef greið­andi skuldar eina milljón króna sam­an­lagt af öllum skulda­bréfum sem eru komin í inn­heimtu nemur afslátt­ur­inn 5 pró­sentum og fer síðan hækk­andi og er veittur hámarks­af­sláttur, 15 pró­sent, ef greið­and­inn skuldar 4,8 millj­ónir króna eða meira.

[adspot]

Sótt er um upp­greiðslu­af­slátt­inn raf­rænt á vef Mennta­sjóðs­ins og fá greið­endur í kjöl­farið sendan greiðslu­seðil í heima­banka þar sem búið er að draga frá upp­hæð­inni þann afslátt sem við­kom­andi á rétt á.

Eingöngu hægt að fá afslátt vegna upp­greiðslu á eldri lánum og afslátt vegna auka­inn­borg­ana af náms­lánum sam­kvæmt eldri lögum. Ekki er hægt að fá upp­greiðslu­af­slátt af svoköll­uðum H-lánum, sem eru þau lán sem veitt eru í dag. Þau fela í reynd í sér styrkja­kerfi fyrir náms­menn, en þeir sem ljúka námi á til­settum tíma eiga rétt á 30 pró­sent nið­ur­fell­ingu höf­uð­stóls náms­láns­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skólamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár