Segir svör ráðherra ekki fullnægjandi

Halldóra Mogensen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, fannst Ásmundur Einar ekki gefa nægi­lega skýr svör á fundi nefnd­ar­innar í morgun.

Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar Alþingis á fundi í morgun.
Halldóra Mogensen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis á fundi í morgun. Mynd: Bára Huld Beck

Svör Ásmundar Einars Daða­sonar félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra eru ekki full­nægj­andi, að mati Halldóru Mogensen, for­manns vel­ferð­ar­nefndar Alþingis. Ráð­herr­ann sat fyrir svörum nefnd­ar­manna á fundi í morgun vegna umfjöll­unar Stund­ar­innar fyrir helgi um störf Braga Guð­brands­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu.

[links]„Það var eins og gengur og ger­ist að það er talað í kringum hlut­ina og forð­ast að svara já eða nei,“ segir hún í sam­tali við Kjarnann eftir fund­inn. Hún segir að það væri ósk­andi að fá full­nægj­andi svör en bætir við að hún sé orðin vön því á þessum vinnu­stað að fólk svari yfir­leitt ekki með afger­andi hætti.

Henni finnst ráð­herra ekki svara nægi­lega skýrt hverjar raun­veru­legar nið­ur­stöður rann­sóknar á störfum Braga voru. „Það var það sem ég var að fiska eftir,“ segir hún. Þau í nefnd­inni muni þrýsta á að trún­aði verði aflétt af þessum skjölum og þá muni koma í ljós þær upp­lýs­ingar sem hún hafi verið að reyna að fá frá ráð­herra á fund­inum.

Stundin hefur birt frum­gögn máls­ins, það er að segja tölvu­pósta og sím­talsút­drátt með per­sónu­grein­an­legum og við­kvæmum upp­lýs­ingum afmáðum, til að varpa ljósi á þátt Braga í mál­inu.

[adspot]

Tilnefning Braga á ábyrgð ríkisstjórnarinnar

Vel­ferð­ar­nefnd mun hitta Braga á mið­viku­dag­inn næst­kom­andi en hann var búinn að biðja um að koma á fund nefnd­ar­innar. Halldóra mun senda honum fund­ar­boð í dag en ekki er búið að ákveða hvort fund­ur­inn verði opinn eður ei en að sögn Halldóru mun það vera ákveðið seinna í dag.

Halldóra segir að til­nefn­ing Braga sé nú algjör­lega á ábyrgð rík­is­stjórn­ar­innar, þ.e. hvort hún ákveður hvort hún dragi til­nefn­ing­una til baka eða ekki. Frest­ur­inn rennur út í dag. Ef til­nefn­ingin verður dregin til baka þá bendir Halldóra á að ekki sé mögu­leiki á að til­nefna annan aðila, þar sem frest­ur­inn verður runn­inn út.

Ásmundur Einar sagði á fund­inum í morgun að fram­boð Braga til þessa emb­ættis væri ekki með beinum hætti á höndum hans ráðu­neytis, heldur utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og fasta­nefndar Íslands hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum í New York. Hann sagði að þætt­ist vita að utan­rík­is­ráðu­neytið sé að fylgj­ast vel með þessu máli. Aðspurður um hvort for­svar­an­legt sé að skipa Braga í emb­ættið hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum sagði Ásmundur Einar að þegar ein­stak­lingur hafi unnið í þessum mála­flokki í ára­tugi sé ekki óeðli­legt að upp komi mál sem valdi ágrein­ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár