Ásmundur vill óháða úttekt á störfum Braga

Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra kom fyrir vel­ferð­ar­nefnd vegna starfa Braga Guð­brands­sonar fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu. Sagði fram­boð Braga til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna á höndum utan­ríksi­ráðu­neyt­is­ins, ekki félags­mála.

Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra kom fyrir velferðarnefnd í dag.
Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra kom fyrir vel­ferð­ar­nefnd í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra hefur lagt það til við for­sæt­is­ráð­herra að fram fari óháð úttekt á störfum Braga Guð­brands­sonar fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu. Þetta kom fram í máli ráð­herra á opnum fundi vel­ferð­ar­nefndar á Alþingi í dag.

[links]Í umfjöllun Stund­ar­innar á föstu­dag kom fram að Bragi hafi beitt sér fyrir því að maður fengi að umgang­ast dægur sína sem hann var grun­aður um að kyn­ferð­is­brot gegn.

Bragi hefur verið til­nefndur fyrir Íslands hönd til setu í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu­þjóð­anna sem óform­legur full­trúi Norð­ur­land­anna.

Ásmundur sagði á fund­inum í morgun að fram­boð Braga til þessa emb­ættis væri ekki með beinum hætti á höndum hans ráðu­neytis, heldur utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og fasta­nefndar Íslands hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum í New York. Hann sagði að þætt­ist vita að utan­rík­is­ráðu­neytið sé að fylgj­ast vel með þessu máli. Aðspurður um hvort for­svar­an­legt sé að skipa Braga í emb­ættið hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum sagði Ásmundur að þegar ein­stak­lingur hafi unnið í þessum mála­flokki í ára­tugi sé ekki óeðli­legt að upp komi mál sem valdi ágrein­ingi.

Ásmundur sagði við upp­haf fund­ar­ins þegar hann ávarp­aði nefnd­ina að hann teldi nauð­syn­legt að form­gera betur sam­skipti milli aðila í mála­flokknum, skýra betur verk­ferla og mik­il­vægt að flytja eft­ir­lits­þátt Barna­vernd­ar­stofu til nýrrar eft­ir­lits­stofn­unar.

Hann sagði það hafa verið nið­ur­stöðu skoð­unar félags­mála­ráðu­neyt­is­ins að Bragi hafi ekki brotið af sér í starfi og þannig ekki til­efni til áminn­ingar. Nokkur mál hafi verið til skoð­unar eitt þeirra hafi verið skoðað sér­stak­lega, sú nið­ur­staða sé við­kvæm og bundin trún­aði.

Ásmundur sagði ástæðu þess að langan tíma hafi tekið að skila vel­ferð­ar­nefnd­inni öllum gögnum máls­ins þá að umfang þeirra væri gríð­ar­lega mikið, um væri að ræða í kringum þús­und blað­síður. Hann hafi óskað eftir því við ráðu­neytið að farið verði yfir þá afstöðu, kall­aðir verði til lög­fróðir ein­stak­lingar í upp­lýs­inga- og per­sónu­vernd­ar­málum til að athuga hvort hægt sé að aflétta trún­aði til að hægt sé að birta nið­ur­stöð­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár