Fundur velferðarnefndar verður eftir allt saman á mánudaginn

Fundur sem Halldóra Mogensen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, boð­aði í gær verður eftir allt saman á mánu­dag­inn eftir fréttir þess efnis að honum hefði verið aflýst eða frestað.

Ákveðið hefur verið að halda fund vel­ferð­ar­nefndar Alþingis næst­kom­andi mánu­dag sem Halldóra Mogensen, for­maður nefnd­ar­innar og þing­maður Pírata, boð­aði í gær. Í fréttum í dag kom fram að Ásmundur Einar Daðason félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra hefði afboðað sig á fund­inn.

Arnar Þór Sæv­ars­son, aðstoð­ar­maður Ásmundar Einars, segir í sam­tali við Kjarnann að um mis­skiln­ing hafi verið að ræða og að staðið hafi til að fara til Ísa­fjarðar að taka á móti flótta­fólki á mánu­dag­inn og því hafi beiðni komið frá ráðu­neyt­inu að fresta fundi fram á mið­viku­dag.

Halldóra stað­festir í sam­tali við Kjarnann að fund­ur­inn verði nú hald­inn á mánu­dag­inn, eins og til stóð frá því hann var boð­aður. Hún segir að ráð­herra sé fús til að mæta á fund­inn á mánu­dags­morgun næst­kom­andi og segir hún einnig að um mis­skiln­ing hafi verið að ræða.

Bragi Guð­brands­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu og fram­bjóð­andi Íslands til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna, beitti sér fyrir því að maður fengi að umgang­ast dætur sínar sem hann var grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn. Þetta kom fram í ítar­legri umfjöllun Stund­ar­innar í gær.

Segir jafn­framt að Bragi hafi hann átt ítrekuð sam­skipti við föður manns­ins sem er mál­kunn­ugur Braga frá því þeir störf­uðu báðir við barna­vernd­ar­mál.

Ásmundur Einar var upp­lýstur um máls­at­vik, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar, og afskipti Braga Guð­brands­sonar af umræddu barna­vernd­ar­máli á fundi í ráðu­neyt­inu í lok jan­úar 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár