Hugsanlegt að 1.500 félagsmenn VS bætist í hópinn hjá VR

Rætt er um að Versl­un­ar­manna­fé­lag Suð­ur­nesja verði sam­einað inn í VR. Virkir félags­menn eru um 1.500, en þar á meðal er stór hópur flug­vall­ar­starfs­manna á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Á aðal­fundi Versl­un­ar­manna­fé­lags Suð­ur­nesja (VS), sem framundan er síðar í mán­uð­inum, mun verða borin upp til­laga um að hefja form­legar við­ræður við Versl­un­ar­manna­fé­lag Reykja­víkur (VR) um sam­ein­ingu.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, mun mæta á fund­inn, og tala fyrir kostum þess að félögin verði sam­einuð.

Í sam­tali við Kjarnann nú í kvöld, sagð­ist hann hrif­inn af hug­mynd­inni og að reynslan frá fyrri sam­ein­ingum minni félaga við VR sýndi að þær væru til bóta. „Slag­kraft­ur­inn í kjara­bar­átt­unni og allri starf­semi stétt­ar­fé­lag­anna getur auk­ist mikið við þetta,“ sagði Ragnar Þór.

Í VS eru um 1.500 virkir félags­menn, en þar á meðal eru fjöl­mennir hópar félags­manna sem starfa á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Heild­ar­fjöldi félags­manna VR er um 30 þús­und, og því myndi félags­mönnum fjölga umtals­vert við þessa sam­ein­ingu. Auk þess kynni það að styrkja VR í harðri kjara­bar­áttu, sem fyr­ir­sjá­an­leg er í haust, að vera með fjölda félags­manna á Kefla­vík­ur­flug­velli, sem í dag má segja að sé lyk­il­vett­vang­ur­inn í íslensku efna­hags­lífi, með hinum mikla vexti ferða­þjón­ustu.

Spár gera ráð fyrir að gjald­eyr­is­tekjur vegna ferða­manna verði 570 millj­arðar á þessu ári, en um 99 pró­sent ferða­manna sem koma til lands­ins koma í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl.

Tvö stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins eru VR og síðan Efling, þar sem Sólveig Anna Jóns­dóttir var nýlega kjörin for­maður. Félags­menn í þessum tveimur félögum eru um 60 þús­und, og eru kjara­við­ræður framundan í haust og á næsta ári.

Búast má við hörðum átökum í kjara­bar­áttu, og segir Ragnar Þór að sam­heldnin sé að aukast í verka­lýðs­hreyf­ing­unni og að það sé hans mat að nú sé að mynd­ast sögu­legt tæki­færi til að ná fram nauð­syn­legum kjara­bótum fyrir fólkið á gólf­inu og kerf­is­breyt­ingum einnig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár