Vill beint flug milli Íslands og Kína

Miklir mögu­leikar fel­ast í betri teng­ingum Íslands við Asíu­mark­aði.

Jin Zhiji­an, sendi­herra Kína á Íslandi, seg­ist vilja efla sam­starf og sam­vinnu Íslands og Kína á ýms­um sviðum, og meðl ann­ars að komið verði á beinu flugi milli Íslands og Kína.

Þetta kemur fram í við­tali við sendi­herr­ann í Morg­un­blað­inu í dag.

Nefn­ir hann sam­starfs­mögu­leika m.a. mál­efni norður­slóða, nýt­ingu jarð­varma og ferða­þjón­ustu, og í þessu öllu séu miklir mögu­leikar.

„Ég tel að það sé vel hægt að opna beina flug­leið á milli Kína og Íslands vegna þess að það bæt­ist sí­fellt í hóp þeirra sem vilja ferð­ast þessa leið,“ seg­ir hann.

Ljóst má telj að opnu flug­leiðar beint milli Kefla­víkur og Kína yrði gríð­ar­lega mikil lyfti­stöng fyrir Ísland. Mikill hag­vöxtur í Kína, und­an­farna tvo ára­tugi, hefur skapað stóran markað fyrir ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki um allan heim.

Talið er að milli­stéttin í Kína vaxi um 20 til 30 millj­ónir manna árlega, en miklar innri breyt­ingar hafa verið á kín­versku hag­kerfi á und­an­förnum árum, með vax­andi kaup­getu almenn­ings og nútíma­væð­ingu lifn­að­ar­hátta.

Kína er fjöl­menn­asta ríki heims með tæp­lega 1,4 millj­arða í íbúa­fjölda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár