Gylfi: Verkalýðshreyfingin verður að bíta frá sér

Forseti ASÍ segir tug­pró­senta launa­hækk­anir hjá ráða­mönnum þjóð­ar­innar og stjórn­endum hjá rík­inu sem heyra undir kjara­ráð hafa hleypt illu blóði í verka­lýðs­hreyf­ing­una.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Gylfi Arn­björns­son hringdi í Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, nýjan for­mann Eflingar, og óskaði henni til ham­ingju með glæsi­legan sigur í for­manns­kosn­ingu á dög­unum. Hún fékk um 80 pró­sent atkvæða.

Hann seg­ist ekki vera búinn að ákveða hvort hann gefi kost á sér til að leiða ASÍ áfram sem for­seti.

Í við­tali við Morg­un­blaðið í dag, segir Gylfi að það sé hans mat, að verka­lýðs­hreyf­ingin verði að bíta frá sér. Þá hafi miklar launa­hækk­anir ráða­manna þjóð­ar­innar og stjórn­enda hjá rík­inu sem heyra undir kjara­ráð hleypt illu blóði í hreyf­ing­una. „Það getur ekki hafa farið fram­hjá neinum sem hefur fjallað um þessi mál að ég hef talið hreyf­ing­una þurfa að bíta frá sér,“ segir Gylfi í við­tali við Morg­un­blaðið.

Fingraför ráð­herra blasi við m.a. við breyt­ingar á kjörum kjara­ráðs. Þá hafi ákvarð­anir um kjör for­stöðu­manna fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins eftir að þær voru teknar frá kjara­ráði, átt að stuðla að meiri aga og ábyrgð á launa­hækk­unum for­stjór­anna en nið­ur­staðan blasi hins vegar við. „Það hefur verið mitt mat nokkuð lengi að hreyf­ingin þurfi að bíta frá sér. Ég var þeirrar skoð­unar 2014 og 2015 og það var mín til­laga (um sein­ustu mán­aða­mót) að segja upp þessum kjara­samn­ingum, þannig að sú harka sem þau eru að end­ur­spegla held ég að sé ekk­ert alveg ein­skorðuð við þau,“ segir Gylfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár