Fleiri „hallarbyltingar“ framundan?

Formaður VR segir kröf­una um breyt­ingar í verka­lýðs­hreyf­ing­unni vera aug­ljósa. Síend­ur­tekið hafi hún komið fram í kosn­ingum að und­an­förnu.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, telur frek­ari „hall­ar­bylt­ingar“ innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar vera framundan, og segir miklar breyt­ingar hafa átt sér stað á stuttum tíma í mörgum stétt­ar­fé­lögum. Þetta séu mikil tíð­indi sem marki nýtt upp­haf innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.

Þetta kemur fram í við­tali við Ragnar í Morg­un­blað­inu í dag. „Það er mik­il undir­alda. Hún hef­ur verið að byggj­ast upp. Þegar ég náði kjöri sem for­maður VR fyr­ir ári kom mér á óvart hversu af­ger­andi nið­ur­staðan var. Mér varð þá ljóst að krafa var um ákveðnar breyt­ing­ar inn­an hreyf­ing­ar­inn­ar. Mitt fram­boð var mjög af­drátt­ar­laust. Það var van­trausts­yf­ir­lýs­ing á ákveðna þætti og ákveðna aðila inn­an hreyf­ing­ar­inn­ar,“ seg­ir Ragn­ar Þór í við­tali við Morg­un­blaðið.

Eins og kunn­ugt er var Sólveig Anna Jóns­dóttir kjör­inn nýr for­maður Eflingar á dög­unum, en hún vann með yfir­burðum. Hún naut stuðn­ings Ragnars Þórs í aðdrag­anda kosn­inga í Eflingu.

„Síðan má segja að gras­rót­in hafi stigið fram inn­an Kenn­ara­sam­bands Íslands (KHÍ). Það gerð­ist fyrst með kjöri Ragn­ars Þórs Pét­urs­son­ar sem for­manns KHÍ. Þá fór gras­rót­armaður gegn ríkj­andi öfl­um. Síðan gerð­ist það sama hjá Fé­lagi grunn­skóla­kenn­ara þegar Þor­gerður Lauf­ey Diðriks­dótt­ir er kjör­in for­maður. Bæði vinna yf­ir­burða­sig­ur. Nú síð­ast stíg­ur Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir fram í Efl­ingu með ekki ósvip­uðum hætti og við gerðum í hall­ar­bylt­ing­unni árið 2009 í VR. Það var lista­kosn­ing hjá Efl­ingu og nið­ur­staðan er ótrú­leg,“ seg­ir Ragn­ar Þór við Morg­un­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár