Sögulegur sigur Sólveigar Önnu markar nýtt upphaf

Í 20 ár hefur ekki verið kosið í for­ystu Eflingar. Nýr for­maður vill rót­tæka verka­lýðs­bráttu fyrir þau sem lægstu launin hafa.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, starfs­maður á leik­skóla í Reykja­vík, sigr­aði for­manns­kosn­ingu í Eflingu með yfir­burðum í gær, og má með sanni segja að sig­ur­inn marki nýtt upp­hafi í stétt­ar­fé­lags­bar­átt­unni hér á landi.

Í Eflingu eru nú tæp­lega 30 þús­und félags­menn en á kjör­skrá voru 16.578 fé­lags­menn og af þeim greiddu 2.618 at­kvæði. Sólveig Anna fékk 2.099 atkvæði af þeim heild­ar­fjölda, eða um 80 pró­sent atkvæða, og meðan mót­fram­bjóð­andi hennar fyrir A-lista stjórnar og trún­að­ar­ráðs, Ingvar Vigur Hall­dórs­son, hlaut 519 atkvæði.

Yfirburðir eins og hjá VR

Sólveig Anna var opin­ber­lega stutt af Ragnari Þór Ing­ólfs­syni, for­manni VR, sem sigr­aði einnig for­manns­kosn­ing­arnar hjá VR, sem er með um 33 þús­und félags­menn, með yfir­burðum. Hann fékk rúm­lega 62 pró­sent atkvæða þegar hann var kjör­inn for­maður til tveggja ára, í fyrra.

Róttæktar breytingar

Sólveig Anna mun taka við af Sigurði Bessa­syni, sem hefur verið for­maður Eflingar í tæp­lega 20 ár, en á þeim tíma hefur aldrei komið til mót­fram­boðs og því verið sjálf­kjörið í stjórn.

Sólveig Anna hefur boðað rót­tæka stefnu­breyt­ingu í verka­lýðs­hreyf­ing­unni, og vill að barist sé með meira afger­andi hætti fyrir hönd þeirra sem lægstu launin hafa.

Þeir sem voru með Sól­veigu Önnu á lista og taka sæti í stjórn Efl­ing­ar eru Magda­lena Kwi­at­kowska hjá Café Par­is, Aðal­geir Björns­son, tækja­stjóri hjá Eim­skip, Anna Marta Mar­jan­kowska hjá Nátt­úru þrif­um, Daní­el Örn Arn­ars­son hjá Kerfi fyr­ir­tækja­þjón­ustu, Guðmund­ur Jónatan Bald­urs­son, bíl­stjóri hjá Snæ­land Gríms­son, Jamie Mcquilk­in hjá Resource In­ternati­onal ehf. og Kol­brún Val­ves­dótt­ir, starfs­maður bú­setu­þjón­ustu Reykja­vík­ur­borg­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár