Sólveig Anna nýr formaður Eflingar

Sólveig Anna Jóns­dóttir er nýr for­maður Eflingar. Þetta var kunn­gjört fyrir skömmu, en B-listi hennar hafði betur gegn A-lista í stjórn­ar­kosn­ingum í Eflingu, einu stærsta stétt­ar­fé­lagi lands­ins með tæp­lega 30 þús­und félags­menn.

Kosið var í dag og í gær.

Fyrir A-lista var Ingvar Vigur Hall­dórs­son for­manns­efni, en fyrir B-lista Sólveig Anna, eins og áður segir. Hún naut meðal ann­ars stuðn­ings Ragnars Þórs Ing­ólfs­soanr, for­manns VR, í emb­ættið.

Sólveig Anna sigr­aði með miklum yfir­burðum í kjör­inu. A-list­inn fékk 519 atkvæði en B-listi Sól­veigar Önnu 2099 atkvæði. Nið­ur­staðan var kynnt skömmu fyrir hálf eitt.

Sólveig Anna hefur talað fyrir því að verka­lýðs­hreyf­ingin taki rót­tækum breyt­ingum, og að fólkið á gólf­inu, sem lægstu launin hafi, fái meira vægi í bar­áttu hennar, auk þess sem breytt verði um stefnu þegar komið að líf­eyris- og hús­næð­is­málum.

Sólveig Anna mun taka við af Sigurði Bessa­syni, frá­far­andi for­manni, á aðal­fundi félags­ins þann 26. apríl nk.

Þeir sem voru með Sólveigu Önnu á lista og taka sæti í stjórn Eflingar eru Magda­lena Kwiatkowska hjá Café Paris, Aðalgeir Björns­son, tækja­stjóri hjá Eimskip, Anna Marta Marjankowska hjá Náttúru þrif, Daníel Örn Arn­ars­son hjá Kerfi fyr­ir­tækja­þjón­ustu, Guð­mundur Jónatan Bald­urs­son, bíl­stjóri hjá Snæland Grímsson, Jamie Mcquilkin hjá Resource International ehf. og Kolbrún Valv­es­dóttir, starfs­maður búsetu­þjón­ustu Reykja­vík­ur­borgar.

Á kjör­skrá voru 16.578 félags­menn og af þeim greiddu 2.618 atkvæði.

Auðir seðlar voru 6 og ógildir voru 4.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár