Líf, Elín og Þorsteinn leiða hjá VG í Reykjavík

Forvali Vinstri grænna lauk í dag. Þau Líf Magneu­dóttir, Elín Oddný Sig­urð­ar­dóttir og Þor­steinn V. Ein­ars­son skipa þrjú efstu sætin. Kosið var um fimm efstu sæti á lista og greiddu tæp­lega 500 atkvæði í val­inu.

Líf, Elín og Þorsteinn leiða lista VG í Reykjavík.
Líf, Elín og Þor­steinn leiða lista VG í Reykja­vík. Mynd: Samsett.

Líf Magneu­dóttir mun leiða lista Vinstri grænna í Reykja­vík. Hún var ein í fram­boði í odd­vita­sætið í raf­rænu for­vali flokks­ins sem fram fór í dag og hlaut 401 atkvæði. Valið var í fimm efstu sætin á list­anum en í kjöl­farið mun upp­still­ing­ar­nefnd stilla upp þeim sem á eftir efstu fimm koma.

Í öðru sæti hafn­aði núver­andi vara­borg­ar­full­trúi flokks­ins, Elín Oddný Sig­urð­ar­dóttir en auk hennar bauð sig fram í annað sætið Gústaf Adolf Bergmann Sig­urð­ar­son, dokt­or­snemi í heim­speki. Elín Oddný hlaut 331 atkvæði í 1. til 2. sætið. Gústað hlaut 99 atkvæði.

Í þriðja sæti er Þor­steinn V. Ein­ars­son, deild­ar­stjóri ung­linga­starfs í félags­mið­stöð með 164 atkvæði í 1. til 3. sæti. Þar á eftir komu þau Hreindís Ylva Garð­ars­dóttir Holm, leik­kona, í 4. sæti og René Biasone, sér­fræð­ingur hjá Umhverf­is­stofnun, í 5. sæti.

Alls tóku 493 þátt í for­val­inu en á kjör­skrá voru félagar í Vinstri grænum sem skráð voru fyrir 14. febr­úar 2018.

Næstur var Gústav Adolf Bergmann Sig­ur­björns­son með 181 atkvæði í 1. til 5. sæti. Þar á eftir kom Björn Teitsson, Guðbjörg Ingunn Magn­ús­dóttir, Hermann Valsson, Ragnar Karl Jóhans­son og Jakob S. Jónsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vinstrigræn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár