Ríkissaksóknari vill sýkna alla í Guðmundar- og Geirfinnsmálum

Settur rík­is­sak­sókn­ari í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu gerir þá kröfu í grein­ar­gerð sinni til Hæsta­réttar að ákærðu í mál­inu verði sýkn­aðir í öllum ákæru­at­riðum.

Baksíða Morgunblaðsins 3. febrúar 1977.
Baksíða Morg­un­blaðs­ins 3. febr­úar 1977. Mynd: Úr safni.

Settur rík­is­sak­sókn­ari í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu gerir þá kröfu í grein­ar­gerð sinni til Hæsta­réttar að ákærðu í mál­inu verði sýkn­aðir í öllum ákæru­at­riðum.

Dömkröfur rík­is­sak­sókn­ara eru þannig að ákærðu Kristján Viðar Við­ars­son [Júl­í­us­son], Sævar Marinó Ciesielski og Tryggvi Rúnar Leifsson verði sýkn­aðir af ákæru fyrir að hafa þann 27. jan­úar 1974 í félagi ráð­ist á Guðmund Ein­ars­son í kjall­ara­í­búð í Hafn­ar­firði, á þáver­andi heim­ili Sævars, og mis­þyrmt honum svo að hann hlaut bana af, og komið líki hans síðan fyrir á ókunnum stað.

Einnig að ákærði Albert Klahn Skafta­son verði sýkn­aður af ákæru um að hafa tálmað rann­sókn á broti hinna fyrr­greindu með því að veita þeim lið­sinni við að fjar­lægja og koma líki Guð­mundar fyrir í hraun­inu sunnan Hafn­ar­fjarðar í bif­reið sem hann hafði til umráða og ók.

Að end­ingu að ákærðu Kristján Viðar, Sævar og Guðjón Skarp­héð­ins­son verði sýkn­aðir af ákæru um að hafa mis­þyrmt þann 20. nóv­em­ber 1974 í félagi Geirfinn Ein­ars­son þannig að hann hlaut bana af í Drátt­ar­braut­inni í Keflavík. Að þeir hafi síðan flutt um nótt­ina lík hans í bif­reið, er Guðjón ók, að heim­ili Krist­jáns í Reykja­vík. Daginn eftir hafi Kristján, Sævar og Erla Bolla­dóttir flutt lík Geir­finns í bif­reið að Rauð­hólum og greftrað þar lík­ams­leifar Geir­finns eftir að hafa hellt bens­íni á lík­ama hans og lagt eld í.

Rík­is­sak­sókn­ari gerir einnig þá kröfu að málsvarn­ar­laun skip­uðum verj­endum mann­anna verði greidd málsvarn­ar­laun úr rík­is­sjóði.

Davíð Þór Björg­vins­son er settur rík­is­sak­sókn­ari í mál­unum, en hann hóf nýlega störf sem dóm­ari við Lands­rétt.

Margvíslegur vafi í mörgum atriðum

Kjarninn í nið­ur­stöðu end­ur­upp­töku­nefndar í báðum málum hafi verið það að sam­an­burður á nýjum gögnum og upp­lýs­ingum, þar á meðal um máls­með­ferð við rann­sókn og dóms­með­ferð, og þeim gögnum sem lágu fyrir Hæsta­rétti, hafi varpað ljósi á svo mörg atriði í sönn­un­ar­mati í þeim þætti máls­ins sem varð­aði aðild þeirra Sævars, Krist­jáns og Tryggva að atlögu að Guðmundi Ein­ars­syni og Sævars, Krist­jáns og Guðjóns í atlögu Geir­finni Ein­ars­syni, að telja verði að hin nýju gögn hefðu veru­lega miklu skipt fyrir nið­ur­stöðu máls­ins hvað dóm­felldu varðar, hefðu þau komið fram áður en dómur gekk. End­ur­upp­töku­nefnd taldi að í mörgum atriðum hafi vantað upp á að dóm­felldu hafi notið þess marg­vís­lega vafa sem uppi var um máls­at­vik og að veru­legar líkur hafi verið leiddar að því að sönn­un­ar­gögn sem færð voru fram í mál­inu hafi verið rangt metin svo að áhrif hafi haft á nið­ur­stöðu þess.

Í báðum til­fellum telur settur rík­is­sak­sókn­ari að þetta eigi að leiða til þess að litið verði svo á að sak­fell­ing dóm­felldu í hvorum þætti máls­ins fyrir sig hafi ekki verið studd við sönn­un­ar­gögn sem ekki verði véfengd með skyn­sam­legum rökum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár