Vill ekki tengja Landsréttarmálið við óeðlileg pólitísk afskipti

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra telur lang­sótt að tengja stuðn­ing pólska rík­is­ins við máls­at­vik í Lands­rétt­ar­mál­inu. Formaður Dóm­ara­fé­lags­ins segir stuðn­ing­inn vera „slæman félags­skap“ þar sem pólskir dóm­arar sæti ofsóknum stjórn­valda.

Vill ekki tengja Landsréttarmálið við óeðlileg pólitísk afskipti
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Ráðherra segir alvana­legt að stjórn­völd komi sínum sjón­ar­miðum á fram­færi hjá Mann­rétt­inda­dóm­stólnum. Mynd: xd.is

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra segir Lands­rétt­ar­málið ekk­ert eiga skylt við her­ferðir stjórn­valda gegn pólskum dóm­stólum. Segir hún það vera af og frá að tengja Lands­rétt­ar­málið við óeðli­leg póli­tísk afskipti fram­kvæmda­valds­ins af skipan dóms­valds­ins. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Rík­is­stjórnin afgreiddi grein­ar­gerð á föstu­dag vegna áfrýj­unar nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins um að Sigríður Andersen, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, hefði brotið lög við skipan dóm­ara í Lands­rétt. Málið verður tekið fyrir hjá Yfir­deild dóm­stóls­ins 5. febr­úar.

Kjartan Bjarni Björg­vins­son, for­maður Dóm­ara­fé­lags­ins og dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, hefur sagt það veru­legt áhyggju­efni að pólsk yfir­völd styðji íslenska ríkið í Lands­rétt­ar­mál­inu. „Pólskir dóm­arar hafa und­an­farin ár sætt ofsóknum og skipu­lögðum rógs­her­ferðum stjórnar PiS-flokks­ins sem vill afnema sjálf­stæði dóm­stóla, beita kyn­bundnu mis­rétti og tak­marka sjálf­sögð grund­vall­ar­rétt­indi hinsegin fólks,“ sagði hann í færslu á Facebook fyrir helgi. „Íslensk stjórn­völd eiga forð­ast slíkan félags­skap eins og heitan eld­inn.“

Áslaug segir það alvana­legt að önnur lönd komi sjón­ar­miðum sínum á fram­færi fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum. „Við munum bara halda áfram með málið út frá okkar for­sendum og þeim sjón­ar­miðum. Ég tel að Lands­rétt­ar­málið eigi ekk­ert skylt við máls­at­vik í Póllandi. Það er ansi lang­sótt að tengja það saman,“ sagði Áslaug við Morg­un­blaðið.

Hún telur ekki að afstaða pólska rík­is­ins muni hafa áhrif á mála­vexti. „Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn klofn­aði í afstöðu sinni í neðri deild­inni og við teljum minni­hluta­á­litið þar vera vel rök­stutt. Þar kemur meðal ann­ars fram að álit Hæsta­réttar varð­andi túlkun á íslenskum lögum um að dóm­ar­arnir séu lög­lega skip­aðir sé rétt nið­ur­staða,“ sagði Áslaug enn­fremur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu