Grímur hættir hjá SAF

Und­ar­farin fjögur ár hefur Grímur Sæmund­sen verið for­maður Samtaka ferða­þjón­ust­unnar. Vöxtur í grein­inni hefur verið gríð­ar­legur.

Grímur Sæmund­sen, for­maður Samtaka ferða­þjón­ust­unnar og for­stjóri Bláa lóns­ins, hefur upp­lýst kjör­nefnd og með­stjórn­ar­menn sína hjá SAF um að hann hafi ákveðið að gefa ekki kost á sér til áfram­hald­andi starfa sem for­maður SAF á næsta aðal­fundi sam­tak­anna þann 21.mars n.k.

Frá þessu er greint á vefnum Túristi.is.

Í við­tali við Túrista segir Grímur að hann hafi núna sinnt for­manns­starf­inu und­an­farin fjögur ár sem hafi verið mik­ill umbrota­tími í ferða­þjón­ust­unni og vaxt­ar­skeiðið for­dæma­laust í nokk­urri atvinnu­grein á Íslandi.

Það verk­efni segir Grímur að hafi verið gef­andi og skemmti­legt en um leið mjög tíma­frekt og krefj­andi þannig að nú telji hann við hæfi að ein­hver annar stigi fram og tæki við kyndl­inum.

„Að mínu mati hefur starf­semi SAF eflst mikið á und­an­förnum fjórum árum og staða sam­tak­anna er nú sterk sem helsta málsvara og hags­muna­gæslu­að­ila stærstu útflutn­ings­at­vinnu­greinar lands­ins. Þennan árangur má ekki síst þakka frá­bæru starfs­fólki á skrif­stofu sam­tak­anna. Þess sem velst til for­ystu á næsta aðal­fundi bíða áhuga­verð og krefj­andi verk­efni við að standa vörð um þann árangur sem náðst hefur og sækja enn fram félags­mönnum SAF til heilla,“ segir Grímur í við­tali við Túrista.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár