Tíu þingmenn fá nánast allar endurgreiðslur vegna aksturs

Tugur þing­manna fá níu af hverjum tíu krónum sem end­ur­greiddar eru vegna akst­urs eigin bif­reiða. Fjórir fá um helm­ing greiðsln­anna. Þeim þing­mönnum sem þiggja háar upp­hæðir vegna slíks akst­urs hefur fækkað mikið á und­an­förnum fimm árum.

Lítill hluti þingmanna þiggur nánast allar endurgreiðslur sem greiddar eru vegna aksturs á eigin bifreið.
Lítill hluti þing­manna þiggur nán­ast allar end­ur­greiðslur sem greiddar eru vegna akst­urs á eigin bif­reið. Mynd: Bára Huld Beck

Þeir tíu þing­menn sem fengu hæstu end­ur­greiðslur vegna akst­urs fengu sam­tals 25,8 millj­ónir króna greiddar frá rík­inu í fyrra. Samtals voru greiddar 29,2 millj­ónir króna vegna árs­ins í heild. Það þýðir að tíu efstu fengu 88 pró­sent af öllum end­ur­greiðslum.

[links]Sá sem fékk hæstu end­ur­greiðsl­una, Ásmundur Frið­riks­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, fékk 4,6 millj­ónir króna end­ur­greiddar. End­ur­greiddur kostn­aður Ásmundar er því tæp­lega 16 pró­sent af öllum end­ur­greiddum kostn­aði. Ásmundur er 1,6 pró­sent þing­manna.

Þeir fjórir þing­menn sem fá hæstu end­ur­greiðsl­urnar þiggja sam­tals 14 millj­ónir króna árlega vegna þeirra. Það þýðir að þeir fá tæp­lega helm­ing allra end­ur­greiðslna vegna akst­urs.

Kostnaður dregist saman um 30 milljónir

End­ur­greiðslur til þing­manna vegna akst­urs hafa dreg­ist mikið saman und­an­farin ár eftir að þeim til­mælum var beint til lands­byggð­ar­þing­manna að nota frekar bíla­leigu­bíla og flug­leiðir til að kom­ast á milli staða. Skrif­stofa Alþingis hefur gert samn­inga við bíla­leigu­fyr­ir­tæki sem eru að finna í ramma­samn­ingi Rík­is­kaupa, um afslætti af gjald­skrá bíla­leigu­bíla til að ná niður þessum kostn­aði enn frekar.

[adspot]Árið 2013 var heild­ar­kostn­aður end­ur­greiðslna 59,8 millj­ónir króna, eða rúmum 30 millj­ónum króna meiri en í fyrra. Þá fengu þeir tíu sem þáðu hæstu end­ur­greiðsl­urnar 27,7 millj­ónir króna, eða tæpan helm­ing allra end­ur­greiðslna. Samkvæmt þessum tölum virð­ist því hafa fækkað mjög í hópi þeirra þing­manna sem þiggja háar end­ur­greiðslur en nán­ast sama upp­hæð fer enn til þeirra tíu þing­manna sem taka mest til sín af end­ur­greiðslum.

Fastur og breytilegur kostnaður

Akst­ur­gjald er greitt sam­kvæmt akst­urs­dag­bók þar sem þing­menn halda utan um allan akstur á sínum eigin bif­reið­u­m. ­Ferða­kostn­að­ar­nefnd, sem heyrir undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­ið, ákveður akst­ur­gjald í akst­urs­samn­ingum rík­is­starfs­manna og rík­is­stofn­ana. Gjaldið skipt­ist í almennt gjald, sér­stakt gjald og svo­kallað tor­færu­gjald. Almenna gjaldið á við akstur á mal­bik­uðum vegum inn­an­bæjar og utan, sér­staka gjaldið á við akstur á mal­ar­vegum utan­bæjar og tor­færu­gjaldið mið­ast við akstur við sér­stak­lega erf­iðar aðstæð­ur, gjarnan utan vega og ein­ungis jeppa­fært.

[box]Grunnur akst­urs­gjalds­ins skipt­ist í fastan kostnað og breyti­legan kostn­að. Í föstum kostn­aði voru afskrift­ir, skoð­un­ar­gjald, bif­reiða­gjald, ábyrgð­ar­trygg­ing og húf­trygg­ing, en í breyti­legum kostn­aði bens­ín, smurn­ing, olía, hjól­barð­ar, vara­hlutir og við­gerð­ir.

Greiðsl­urnar eru und­an­þegnar skatti.

Fjölmiðlum gengið illa að fá svör

Fjöl­miðlar hafa árum saman reynt að fá upp­lýs­ingar um hvaða þing­menn fái end­ur­greiðslu vegna akst­urs, en án árang­urs. Kjarninn fjall­aði til að mynda um málið í frétta­skýr­ingu árið 2015 þar sem fram kom að alls 28 þing­menn hefðu fengið end­ur­greiðslu á árinu 2014, þar af 18 yfir eina milljón króna. Ekki var hins vegar hægt að fá upp­lýs­ingar um hvaða þing­menn var að ræða. Þær upp­lýs­ingar þóttu þá sem nú of per­sónu­legar.

Málið tók á sig aðra mynd á fimmtu­dag þegar for­seti Alþingis svar­aði fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Píratar, um akst­urs­kostnað. Í svari for­seta var greint frá því hversu háar greiðslur þeir tíu þing­menn sem fengu hæstu skatt­lausu end­ur­greiðsl­urnar þáðu á síð­ustu fimm árum. Ekki var hins vegar greint frá nafni þeirra.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, gekkst hins vegar við því í sam­tali við RÚV á föstu­dags­morgun að vera sá sem trónir á toppi list­ans. Hann fékk sam­tals 4,6 millj­ónir króna end­ur­greiddar í fyrra, eða 385 þús­und krónur á mán­uði skatt­frjálst. Greiðsl­urnar til Ásmundar voru um 16 pró­sent af heild­ar­end­ur­greiðslum til þing­manna vegna akst­urs.

Ekki liggur fyrir á þess­ari stundu hvaða aðrir þing­menn eru á topp tíu list­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár