Þingmenn fengu meira en milljón í vasann fyrir að aka sínum eigin bílum

Alþingi greiddi 28 þing­mönnum sam­tals 51,5 millj­ónir króna í svo­kallað akst­urs­gjald, eða vegna akst­urs eigin bif­reiða, á síð­asta ári. Þar af voru 18 þing­menn sem fengu greitt meira en eina milljón króna, en greiðsl­urnar eru und­an­þegnar skatti. Þetta kemur fram í skrif­legu svari skrif­stofu Alþingis við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Akst­urs­gjald er greitt sam­kvæmt akst­urs­dag­bók þar sem þing­menn halda utan um allan akstur á sínum eigin bif­reiðum. Ferða­kostn­að­ar­nefnd, sem heyrir undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, ákveður akst­urs­gjald í akst­urs­samn­ingum rík­is­starfs­manna og rík­is­stofn­ana. Gjaldið skipt­ist í almennt gjald, sér­stakt gjald og svo­kallað tor­færu­gjald. Almenna gjaldið á við akstur á mal­bik­uðum vegum inn­an­bæjar og utan, sér­staka gjaldið á við akstur á mal­ar­vegum utan­bæjar og tor­færu­gjaldið mið­ast við akstur við sér­stak­lega erf­iðar aðstæður, gjarnan utan vega og ein­ungis jeppa­fært.

90.000 krónur fyrir akstur til Akureyrar og til baka


Samkvæmt almenna gjald­inu eru greiddar 116 krónur fyrir hvern ekinn kíló­metra upp að tíu þús­und kíló­metrum, 104 krónur eftir það og upp að 20.000 kíló­metrum og 93 krónur fyrir hvern kíló­metra umfram þá vega­lengd. Við útreikn­ing á sér­stöku gjaldi bæt­ist við 15 pró­senta álag ofan á almenna gjaldið, og við útreikn­ing á tor­færu­gjaldi skal bæta 45 pró­senta álagi á almenna gjaldið.

Miðað við ofan­greint kostar því ferð þing­manns á eigin bíl til Akur­eyrar og til baka rúmar 90.000 krónur sem greið­ast úr rík­is­sjóði. Sé vinnu­ferð­inni heitið til Egils­staða og til baka, hljóðar kostn­aður rík­is­sjóðs upp á rúmar 151.000 krónur. Þá kostar önnur leiðin til Selfoss rík­is­sjóð rúmar sex þús­und krónur, og öku­ferð úr höf­uð­borg­inni til Sauð­ár­króks kostar rúmar 37 þús­und krónur.

Samkvæmt upp­lýs­ingum af vef efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins hefur ferða­kostn­að­ar­nefnd til þessa stuðst við ákveð­inn grunn við útreikn­ing akst­urs­gjalds. Á grund­velli hans var reikn­aður út rekstr­ar­kostn­aður bif­reiðar á heilu ári miðað við 15 þús­und kíló­metra akstur og síðan með­al­kostn­aður á hvern kíló­metra sem gjaldið tók svo mið af. Grunnur akst­urs­gjalds­ins skipt­ist í fastan kostnað og breyti­legan kostnað. Í föstum kostn­aði voru afskriftir, skoð­un­ar­gjald, bif­reiða­gjald, ábyrgð­ar­trygg­ing og húf­trygg­ing, en í breyti­legum kostn­aði bensín, smurn­ing, olía, hjól­barðar, vara­hlutir og við­gerðir.

Gengur brösulega að fá þingmenn til að nota bílaleigubíla


Rík­is­sjóður greiddi röskar 62 millj­ónir króna vegna afnota af bif­reiðum starfs­manna Alþingis árið 2013, sam­kvæmt rík­is­reikn­ingi. Árið 2012 hljóð­aði kostn­aður rík­is­sjóðs vegna þessa rúmum 54 millj­ónum króna. Lækk­un­ina á milli ára má skýra með ákvörðun skrif­stofu Alþingis um að greiða ein­ungis sem sam­svarar flug­far­gjaldi, ef för þing­manns var heitið þangað sem hægt var að fljúga með áætl­un­ar­flugi. Fram að því var það þing­manns­ins að ákveða hvort hann ferð­að­ist með flugi á kostnað Alþingis eða not­að­ist við einka­bíl­inn á löngum ferða­lögum.

Skrif­stofa Alþingis hefur gripið til aðgerða til að ná þessum kostn­aði niður enn frekar, og hefur beint því til þing­manna að þeir not­ist frekar við bíla­leigu­bíla í störfum sínum heldur en sína einka­bíla. Heim­ildir Kjarnans herma að brösu­lega hafi gengið að fá þing­menn til að bregð­ast við til­mæl­unum, enda um tölu­verða kjara­bót að ræða fyrir þing­menn að not­ast við sinn einka­bíl í erindum fyrir Alþingi.

Skrif­stofa Alþingis hefur gert samn­inga við bíla­leigu­fyr­ir­tæki sem eru að finna í ramma­samn­ingi Rík­is­kaupa, um afslætti af gjald­skrá bíla­leigu­bíla. Í áður­nefndu svari skrif­stofu Alþingis við fyr­ir­spurn Kjarnans segir: „Samn­ing­arnir munu fyrst og fremst gagn­ast varð­andi akstur þing­manna sem stunda heim­an­akstur, það er búa ekki fjarri höf­uð­borg­ar­svæði en aka til Reykja­víkur dag­lega. Það á þó einnig við um akstur ann­arra þing­manna í lengri ferðum í eigin kjör­dæmi.“

Skrif­stofa Alþingis áætlar að hægt verði að lækka kostnað við akstur um allt að tólf millj­ónir króna á ári, með því að fá þing­menn til að not­ast meira við bíla­leigu­bíla. „Nú þegar á þessi fram­kvæmd við um nokkra þing­menn sem sýnir að þessi áætlun getur vel stað­ist. Stefnt er að setja þetta fyr­ir­komu­lag að fullu í fram­kvæmd á næst­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár