Fólki fjölgar meira á Norðurlöndunum en annars staðar í Evrópu

Samkvæmt skýrslu frá Norrænu ráð­herra­nefnd­inni er helsta ástæða fólks­fjölg­un­ar­innar aðflutn­ingur fólks frá löndum utan Norð­ur­landa.

Fólki fjölgar meira á Norð­ur­lönd­unum en ann­ars staðar í Evrópu. Helsta ástæða fólks­fjölg­un­ar­innar er aðflutn­ingur fólks frá löndum utan Norð­ur­landa. Frá árinu 2000 hafa 4,3 millj­ónir fólks flust til Norð­ur­land­anna á sama tíma og 2,5 millj­ónir hafa fluttst á brott. Aðfluttir umfram brott­flutta eru því 1,8 millj­ónir manna.

Þetta er meðal nið­ur­staðna sem greint er frá í State of the Nordic Region 2018, nýrri skýrslu frá Norrænu ráð­herra­nefnd­inni. Í skýrsl­unni eru bornar saman upp­lýs­ingar frá 74 svæðum Norð­ur­land­anna í máli og aðgengi­legum kortum. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá Nor­dregio. 

Fólk flytur til Norð­ur­land­anna af ýmsum ástæðum svo sem vegna vinnu og náms, segir í til­kynn­ing­unni. Einnig er greint frá því að af fólki á flótta hafi hlut­falls­lega flestir leitað til Sví­þjóðar þar sem hæl­is­leit­endur voru 16,7 á hverja 1000 íbúa árið 2015, þegar straumur flótta­fólks var sem mestur. Sam­svar­andi tala fyrir Noreg er 6,0 og Finnland fylgir á eftir með 5,9. Á síð­ustu 20 árum hafi þeim sem fæddir eru utan Norð­ur­land­anna fjölgað úr 6,5 pró­sent árið 1995 í 14,3 pró­sent tutt­ugu árum síðar.

Að Græn­landi und­an­skildu hefur fólki fjölgað á öllum Norð­ur­lönd­unum und­an­farin tíu ár og hefur heildar mann­fjöld­inn farið úr 25 millj­ónum í 27 millj­ónir. Hlut­falls­lega var fjölg­unin mest í Noregi eða 12,3 pró­sent en næst­mest á Íslandi þar sem hún var 10 pró­sent. Í fjöl­menn­asta nor­ræna rík­inu, Svíþjóð hefur íbúum fjölgað um 9,7 pró­sent. Frá 2007 til 2017 var fjölgun á svæð­inu öllu 8,1 pró­sent og má búast við að árið 2030 verði íbú­arnir orðnir 30 millj­ónir.

Norðurlandabúar að eldast

Þróunina má jafn­framt rekja til fjölg­unar í árgöngum eldra fólks sem eru hlut­falls­lega fjöl­menn­ari á Norð­ur­lönd­unum en að með­al­tali í Evrópu. Fjölg­unin er mest á þétt­býl­is­stöðum, bæði vegna flutn­ings ungs fólks til borg­anna og vegna aðflutn­ings fólks frá öðrum löndum.

Almennt eru Norð­ur­landa­búar að eld­ast. Samkvæmt skýrsl­unni er ástæðan fyrst og fremst afar stórir árgangar fólks á aldr­inum 65 til 79 ára þar sem hlut­falls­lega fleiri lifa lengur en áður. Fram­reikn­ingur sýnir að fólki mun halda áfram að fjölga fram til 2030 en þó örlítið hægar en verið hefur.

Á stórum svæðum í Finn­landi má búast við að helm­ingur full­orð­inna íbúa verði eldri en 65 ára árið 2030. Aðeins á örfáum svæðum eins og í Stokk­hólmi, Kaup­manna­höfn, Osló og Reykja­vík hefur skipt­ingin milli fólks á vinnu­færum aldri og fólks á eft­ir­launa­aldri annað hvort lag­ast eða eða skekkst minna en ann­ars staðar.

Borgir stækka

Á öllum Norð­ur­lönd­unum stækka borg­irnar. Sé litið til þró­unar fram til 2030 er búist við því að fólks­fjölgun á svæð­unum í kringum Kaup­manna­höfn/Malmö, Stokk­hólm, Ósló og Helsinki verði meira en 10 pró­sent. Nú er staðan sú að um 20 pró­sent alls fólks á Norð­ur­lönd­unum býr í höf­uð­borg­unum og nágrenni þeirra.

Borg­irnar stækka ekki síst vegna þess að unga fólkið flytur þangað til náms eða starfa, auk þess sem stór hluti þeirra sem flytja til Norð­ur­land­anna sest að í borgum, segir í skýrsl­unni. Þetta hefur í för með sér að þrátt fyrir að íbú­arnir eld­ist almennt séð, þá er þró­unin mun hæg­ari í stærstu borgum Norð­ur­land­anna.

Skýrslan er unnin af Nor­dregio, fræða­stofnun ráð­herra­nefnd­ar­innar í skipu­lags- og byggða­málum, sem hefur gefið út sam­bæri­legar skýrslur í mörg ár. Auk kafla um lýð­fræði, efna­hags­mál og vinnu­markað eru kaflar um um staf­ræna tækni­þróun, líf­hag­kerfi, heilsu­far og menn­ingu.

Hægt er að fræð­ast frekar um skýrsl­una á nor­den.org.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár