Reykjavíkurborg bregst við stöðu kvenna að erlendum uppruna

Höf­uð­borgin ætlar að vinna að upp­bygg­ingu þekk­ingar um þjón­ustu við inn­flytj­endur, hæl­is­leit­endur og flótta­fólk með sér­stakri fræðslu. Þá verður gert átak í því að koma öllum verk­ferlum vegna áreitni og ofbeldis á vinnu­stöðum á erlend tungu­mál.

Vel­ferð­ar­svið Reykja­vík­ur­borgar hefur sam­þykkt að í aðgerða­á­ætlun og for­gangs­röðun næstu ára að unnið verði á mark­vissan hátt að upp­bygg­ingu fag­þekk­ingar á meðal starfs­fólks vel­ferð­ar­sviðs um þjón­ustu við inn­flytj­endur, hæl­is­leit­endur og flótta­fólk með sér­stakri fræðslu. Þá hefur verið sam­þykkt að fela svið­inu að móta til­lögu um að ýta úr vör verk­efni til að styrkja for­eldra af erlendum upp­runa í upp­eld­is­hlut­verki sínu og styðja við mæður sem eru flótta­fólk til að kom­ast í vinnu.

[links]Þetta segir Regína Ásvalds­dóttir, sviðs­stjóri vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um aðgerðir sem borgin ætlar að ráð­ast í til að stöðu kvenna af erlendum upp­runa og fjölga tæki­færum þeirra til að kom­ast úr erf­iðum aðstæðum.

Kerfisveggurinn sem eykur á vanda kvenna af erlendum uppruna

Í lok jan­úar birti Kjarninn #metoo frá­sagnir kvenna af erlendum upp­runa. Þar var greint frá hrotta­legu kyn­ferð­is­of­beldi og allskyns áreitni sem margar konur úr hópnum hafa orðið fyrir.

Í frá­sögnum þeirra komu líka fram aðrir fletir en hafa komið fram í sam­bæri­legum sögum íslenskra kvenna. Margar kvenn­anna lýstu því í sögum sínum að þær lentu í kerf­is­legum vanda­málum við að losna úr sínum aðstæðum.

[adspot]Á meðal þess sem þær nefndu var að skortur á íslensku­kunn­áttu stæði þeim fyrir þrifum, að þær væru með lítið eða ekk­ert stuðn­ings­net hér­lendis sem gerði það að verkum að þær ættu erf­ið­ara um vik að finna leiðir til að bæta aðstæður sínar, að upp­lýs­inga­gjöf um hvað stæði þeim til boða væri að skornum skammti, og að atvinnu­rek­endur kæmu oft á tíðum fram við þær sem ann­ars flokks borg­ara.

Ætla að fylgja málinu eftir

Regína segir að Reykja­vík­ur­borg ætli að fylgja mál­inu eftir. Nichole Leigh Mosty, fyrr­ver­andi þing­maður og sú sem hélt utan um frá­sagnir kvenn­anna, hefur verið beðin um að aðstoða við mótun aðgerð­ar­á­ætl­unar fyrir vel­ferð­ar­svið til að mæta stöð­unni sem er uppi.

Regína segir að vel­ferð­ar­ráð hafi sam­þykkt í aðgerða­á­ætlun og for­gangs­röðun næstu ára að unnið verði á mark­vissan hátt að upp­bygg­ingu fag­þekk­ingar á meðal starfs­fólks vel­ferð­ar­sviðs um þjón­ustu við inn­flytj­endur, hæl­is­leit­endur og flótta­fólk með sér­stakri fræðslu. Þá verði vel­ferð­ar­sviði falið að móta til­lögu um að ýta úr vör verk­efni til að styrkja for­eldra af erlendum upp­runa í upp­eld­is­hlut­verki sínu og styðja við mæður sem eru flótta­fólk til að kom­ast í vinnu. „Þarna horfum við til þess að þróa þjón­ustu sér­stakra menn­ing­ar­miðl­ara, sem eiga að koma á tengslum á milli íslensks sam­fé­lag og þeirra með því að efla skiln­ing og umburð­ar­lyndi gagn­vart ólíkum menn­ing­ar­heimum. Þá á einnig að finna leiðir til að tryggja íslensku­þjálfun í gegnum vinnu.“

Átak í verkferlum

Að sögn Regínu þarf að gera átak í því að koma öllum verk­ferlum vegna áreitni og ofbeldis á vinnu­stöðum á erlend tungu­mál. „Mann­rétt­inda­skrif­stofa borg­ar­innar hefur gefið út mikið efni sem er dreift til inn­flytj­enda sem eru við­skipta­vinir vel­ferð­ar­sviðs. Þar er m.a. fjallað um ofbeldi á heim­ilum, sam­skipti við börn o.fl. Auk þessa eru í gangi ýmis smærri verk­efni á þjón­ustu­mið­stöðvum sem miða að því að efla konur af erlendum upp­runa og auka tengsl þeirra við nær­sam­fé­lagið. Lítið en gott dæmi um þetta er t.d. sund­nám­skeið sem var haldið í Breið­holti í fyrra fyrir konur af erlendum upp­runa og var sér­sniðið að þörfum þeirra. Þessi mál verða tekin föstum tökum í vinnu með öllum for­stöðu­mönnum sviðs­ins sem eru á annað hund­rað tals­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár