Segir VR sig úr ASÍ?

Formaður VR vill láta reyna á það hvort 33 þús­und manna stétt­ar­fé­lag VR geti sagt sig úr ASÍ án þess að alls­herj­ar­at­kvæða­greiðsla fari fram.

Stjórn stétt­ar­fé­lags­ins VR skoðar hvort rétt sé að láta reyna á að félagið gangi úr Alþýðu­sam­bandi Íslands (ASÍ) án þess að bera það undir félags­menn VR í alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag, og segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, frá þessu í sam­tali við blaðið.

Hann seg­ist búast við því að látið yrði reyna á málið fyrir félags­dómi. Ragnar segir að VR sé aðili að ASÍ í gegnum aðild að Lands­sam­bandi versl­un­ar­manna. „Það eina sem við þurfum að gera er að segja okkur úr Lands­sam­band­inu og þá segjum við okkur sjálf­krafa úr ASÍ. Stjórnin getur ákveðið þá úrsögn.“

Hann segir þó að lög ASÍ geri ráð fyrir að aðild­ar­fé­lög þurfi að efna til alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu til að segja sig úr sam­band­inu. „Þarna er ágrein­ings­mál og við erum að hugsa um að láta reyna á það fyrir félags­dómi,“ segir Ragnar.

Málið verði skoðað á trún­að­ar­ráðs­fundi sem verði lík­lega í mars eða apríl. Ragnar segir að VR greiði Lands­sam­bandi versl­un­ar­manna og ASÍ um 150 millj­ónir á ári. „Ég sé enga ástæðu til að vera að borga nán­ast helm­ing­inn af rekstr­arfé Alþýðu­sam­bands­ins og halda því uppi þegar mér finnst það vera að vinna á móti hags­munum launa­fólks. Þá spyrjum við okkur hvað getum við fengið fyrir þessar 150 millj­ónir. Getum við ráðið inn auka lög­fræð­inga og farið í meiri neyt­enda­vernd og eflt okkar þjón­ustu og okkar sjóði?,“ segir Ragnar Þór í sam­tali við Frétta­blaðið.

Í VR eru 33 þús­und félags­menn, en Ragnar Þór vann yfir­burða­sigur í for­manns­kosn­ingu í fyrra, með tæp­lega 63 pró­sent atkvæða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár