Auður Jónsdóttir sýknuð í meiðyrðamáli

Ummæli Auðar um nátt­úr­u­níð ekki talin úr lausu lofti gripin heldur liður í opin­berri þjóð­fé­lags­um­ræðu.

Auður Jónsdóttir eftir uppkvaðningu dómsins í dag.
Auður Jóns­dóttir eftir upp­kvaðn­ingu dóms­ins í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Auður Jóns­dóttir rit- og pistla­höf­undur var í dag sýknuð í meið­yrða­máli sem Þórarinn Jónasson, land­eig­andi í Laxnesi, oft kall­aður Póri í Laxnesi, höfð­aði á hendur henni.

[links]Málið var höfðað vegna aðsendrar greinar sem Auður birti á Kjarn­anum í júní árið 2016. Í grein­inni, sem var stuðn­ings­grein fyrir fram­boð Andra Snæs Magna­sonar til for­seta Íslands, var meðal ann­ars fjallað um umhverf­is­mál í Mos­fells­dalnum, þar sem Auður ólst upp.

Meðal þess sem Þórarinn gerði kröfu um var að ummæli Auðar um dýra­níð og nátt­úr­u­níð á svæð­inu væru dæmd dauð og ómerk sem og fleiri ummæli eins og : „Körlum og kerl­ingum eins og Póra í Laxnessi sem eygja ekki nátt­úr­una heldur bara pen­inga. Það sem hefur lifað og dafnað í þús­undir ára er skemmt á auga­bragði svo firrt fólk geti keypt sér nýtt sófa­sett eða farið í skemmti­sigl­ingu, gott ef ekki stofnað póst­kassa­fyr­ir­tæki á suð­rænni eyju og sent þangað féð sem ætti mér réttu að vera burða­stoð sam­fé­lags­ins.“

Þá varð gerð krafa um að Auður yrði dæmd til refs­ingar fyrir að hafa við­haft og birt opin­ber­lega á vef­miðli Kjarnans ummælin og að greiða eina milljón króna í miska­bætur með drátt­ar­vöxtum, hálfa milljón fyrir birt­ingu for­sendna og nið­ur­stöðu dóms í mál­inu í dag­blaði og tveimur vef­miðlum auk máls­kostn­aðar Þórarins.

[adspot]Auður krafð­ist þess að hún yrði sýknuð af öllum kröfum og að Þórarinn verði dæmdur til að greiða máls­kostnað hennar.

Hægt er að lesa dóm­inn í heild sinni hér.

Í nið­ur­stöðu dóms­ins kemur fram að ummæli Auðar um ástand jarð­ar­innar að Laxnesi séu ekki úr lausu lofti gripin og til­hæfu­laus líkt og Þórarinn hélt fram. Vitnað er til bréfa frá starfs­manni Land­græðslu Íslands, Rann­sókn­ar­stofn­unar land­bún­að­ar­ins og gagna frá nefnd á vegum Mos­fells­bæjar þar sem alvar­legum áhyggjum af ástandi jarð­ar­innar er lýst.

Ummæli Auðar eru talin vera liður í almennri þjóð­fé­lags­um­ræðu, með því að vekja athygli á þeim verð­mætum sem í nátt­úru lands­ins fel­ast og því tjóni sem af því geti hlot­ist til lengri tíma ef fjár­hags­legir stund­ar­hags­munir ganga framar því að halda uppi vörnum fyrir nátt­úru lands­ins.

Dómurinn segir að lokum að ekki verði talið að Auður hafi í grein sinni við­haft móðgun eða æru­meið­andi aðdróttun í garð Þórarins eða borið slíka aðdróttun út, né við­haft óvið­ur­kvæmi­leg ummæli. Hún er því sýknuð sem fyrr segir af öllum kröfum auk þess sem Þórarni var gert að greiða henni 1,5 millj­ónir í máls­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár