Fast skotið í verkalýðsbaráttunni

Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR svarar Sigurði Bessa­syni frá­far­andi for­manni Eflingar fullum hálsi eftir að Sigurður bland­aði Sós­í­alista­flokknum í bar­átt­una um Eflingu.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR. Mynd: vr.is

„Örvænt­ingin leynir sér ekki hjá Sigurði Bessa­syni frá­far­andi for­manni Eflingar,“ segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR í stöðu­upp­færslu á Facebook.

Hann segir Sigurð gefa í skyn að mót­fram­bjóð­andi upp­still­ing­ar­nefndar til for­manns Eflingar sé ekk­ert annað en vilja­laust verk­færi ein­hverra karla út í bæ. Þannig taki hann ekki aðeins afstöðu gegn sínum eigin félögum, sem hafa lýð­ræð­is­legan rétt á að bjóða sig fram til trún­að­ar­starfa fyrir félagið, heldur sýni hann fram­bjóð­and­anum, Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, fádæma kven­fyr­ir­litn­ingu.

Sigurður segir í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag að óvana­legt sé að utan­að­kom­andi póli­tískt afl kalli eftir því að boðið sé fram í stétt­ar­fé­lagi sem og að for­maður í stétt­ar­fé­lagi blandi sér með beinum hætti inn í stétta­bar­áttu í öðrum stétt­ar­fé­lögum. Vísar hann þar til stuðn­ings Ragnars á fram­boði Sól­veigar og störfum hennar fyrir Sós­í­alista­flokk Íslands, sem er undir for­ystu Gunnars Smára Egils­sonar. Í Morg­un­blað­inu segir Sigurður að ljóst sé að með fram­boði hennar sé Sós­í­alista­flokk­ur­inn kom­inn fram með sinn fram­bjóð­anda til for­ystu stétt­ar­fé­lags­ins og hefur efa­semdir um blöndu verka­lýðs­bar­áttu og flokkspóli­tíkur.

Ragnar segir að þess­ari „karl­rembu risa­eðlu“ hefði verið nær að mæta á opinn fund um Vor í verkó, þar sem fram­bjóð­endur kynntu sig og sínar áherslur, til að skilja út á hvað fram­boðið gengur og kannski hlusta á gras­rót­ina svona einu sinni.

„Sólveig Anna Jóns­dóttir fram­bjóð­andi til for­manns Eflingar er að boða nýja og rót­tæka tíma tíma í verka­lýðs­bar­áttu hún er örugg­lega her­skárri og rót­tæk­ari heldur en ég verð nokkurn tíma og þarf enga hjálp við það sem hún og hennar listi er að gera. Sigurði Bessa­syni er frjálst að gera lítið úr Sólveigu og hennar fólki og mér er frjálst að hafa skoð­anir á því hvort ég styðji gras­rót allra stétt­ar­fé­laga til góðra verka eða ekki,“ segir Ragnar.

Hann segir það eins og að skjóta tívolí­bombum úr gróð­ur­húsi þegar Gylfi Arn­björns­son for­maður ASÍ eða Sigurður reyni að tengja fram­boð­inu ein­hverjum póli­tískum öflum með nei­kvæðum hætti og sýni best þá örvænt­ingu sem gripið hefur um sig meðal þeirra. Margir spenar séu í verka­lýðs­hreyf­ing­unni og margir sem sjúgi fast. En það sé líka mik­ill mannauður í hreyf­ing­unni, starfs­fólk stétt­ar­fé­laga sem fái ekki að blómstra vegna gjald­þrota hug­mynda­fræði örfárra.

„Það er þekkt póli­tísk aðferð­ar­fræði að rétta kyndil­inn áfram til þeirra sem ekki eru lík­legir til að rugga bátnum eða fara gegn hug­mynda­fræði þeirra sem rétta hann áfram. Fyrir þá sem þríf­ast í vellyst­ingum eins og hrossa­fl­ugur í mykju­haug eigin hug­mynda um vel­ferð og lífs­gæði í skjóli lág­launa­stefnu, okur­vaxta, trausts og reynslu, þurfa nú loks að svara sínum eigin félags­mönnum sem ekki hafa aðgang að lok­uðum fundum elít­unnar sem hand­velur vand­lega fund­ar­menn.“

Ragnar seg­ist að lokum mæta reglu­lega á fundi allra stjórn­mála­flokka. Hann tali við gras­rót­ina, heim­sæki fyr­ir­tækin og haldi reglu­lega fundi með sínu bak­landi. Hann hafi hlustað á fram­bjóð­endur til stjórnar Eflingar og fram­bæri­legri hóp af fólki hafi hann ekki séð lengi. Hver ræðan á fætur annarri veitti honum slíkan inn­blástur að hann fékk gæsa­húð.

„Það eru meiri líkur á að Sólveig Anna leiði næstu bylt­ingu stétt­anna en ég. Ég vona það alla­vega því þarna fer mikið for­ystu efni sem þarf enga hjálp frá einum eða neinum, allra síst gömlum risa­eðlum sem hreiðrað hafa um sig innan hreyf­ing­ar­innar og byggt í kringum sig múra frá sauð­svartri Alþýð­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár