Björn vill 3. sætið hjá VG

Björn Teitsson, for­maður Samtaka um bíl­lausan lífs­stíl, sæk­ist eftir þriðja sæti á lista Vinstri grænna.

Björn Teitsson, sagn­fræð­ingur og for­maður Samtaka um bíl­lausan lífs­stíl, sæk­ist eftir þriðja sæti á lista Vinstri hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boð í for­vali flokks­ins.

Í fram­boðs­yf­ir­lýs­ingu seg­ist Björn vilja flug­völl­inn burt úr Vatns­mýr­inni sem allra fyrst. „Það er ein­fald­lega búið að sóa nógum miklum tíma og fé nú þegar. Þetta er okkar verð­mætasta bygg­ing­ar­land sem kemur til með að gjör­breyta borg­ar­lands­lag­inu, allri þjóð­inni til fram­dráttar.“

Þá vill hann banna bíla­um­ferð við Laugaveg með því að opna fyrir fólk, frá Bar­óns­stíg. Það þurfi að ger­ast strax. „Það er ólíð­andi að bílar séu enn að taka 47 pró­sent af borg­ar­götu þar sem er ekki lengur pláss fyrir fólk á gang­stéttum og þar sem for­eldrar ganga um með börn í barna­vögnum í alger­lega til­gangs­lausri loft­mengun. Flest versl­un­ar­fólk áttar sig á því, og hefur gert það fyrir löngu síðan, að það er mun lík­legra að fólk gangi inn í verslun ef það er fót­gang­andi. Það er að minnsta kosti eng­inn öku­maður að aka inn í verslun og versla þannig. En þá er gott að benda á Aktu taktu, nú, eða Skalla,“ segir Björn

Hann seg­ist að sjálf­sögðu styðja Borg­ar­línu og á sama tíma frek­ari fjár­fest­ingu í þjón­ustu Stræt­is­vagna­kerf­is­ins. Þar sé mikið verk að vinna, sér­stak­lega í sýni­leika kerf­is­ins fyrir ferða­fólk, sem veit hrein­lega ekki af til­vist strætó og búi þar með til óþarfa umferð um mengun í bíla­leigu­bílum.

Björn er 36 ára Reyk­vík­ingur og er með nokkrar háskóla­gráður, í sagn­fræði, þýsku, frönsku og alþjóða­sam­skiptum. Hann hefur starfað sem grunn­skóla­kenn­ari, sem blaða­maður og frétta­maður, sem spurn­inga­höf­undur fyrir Gettu betur og sem upp­lýs­inga­full­trúi hjá mann­úð­ar­fé­lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vinstrigræn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár