„Ráðherrar ábyrgir fyrir sér sjálfum“

Vara­for­maður Vinstri grænna opn­aði flokks­ráðs­fund í morgun á yfir­liti yfir stöðu flokks­ins. Sagði hitna undir Sigríði Andersen.

Edward H. Huijbens varaformaður VG og Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra.
Edward H. Huijbens vara­for­maður VG og Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Aðsend.

„Nú er krafa uppi um að okkar for­sæt­is­ráð­herra beiti sér eins og ein­hver ein­ræð­is­herra og ráði og reki ráð­herra, eins og kallað er eftir hverju sinni. Sem betur fer virkar okkar stjórn­skipan ekki alveg þannig,“ sagði Edward Huijbens vara­for­maður Vinstri­hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs í opn­un­ar­ræðu sinni á Flokks­ráðs­fundi flokks­ins í morgun.

Edward ræddi þar stöðu flokks­ins og verk­efnin framundan og kom tölu­vert inn á stöðu Sigríðar Á. Andersen, dóms­mála­ráð­herra, sem situr í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur for­manns Vinstri grænna.

Skipun Sigríðar á dóm­urum í Lands­rétt hefur reynst Sigríði erfitt mál, en Hæsti­réttur dæmdi tveimur umsækj­endum sem hún veitti ekki emb­ætti við rétt­inn, miska­bætur þar sem hún var talin hafa brotið lög við skip­un­ina.

Edward sagði að sem betur fer væri það þannig að ráð­herrar séu ábyrgir fyrir sér sjálfir og sínum ákvörð­unum og sem betur fer sé ábyrgðin fyrst og fremst ævin­lega kjós­enda sjálfra er kemur að því hverjir velj­ast í ráð­herra­stóla. „Þeir sem kjósa flokka og ráð­herra á þing aftur og aftur, sem sann­ar­lega hafa farið á svig við lög og reglur, hljóta að verða skoða hug sinn vand­lega. Ég vil skila skömminni, skila henni til þeirra sem kusu, vit­andi vits yfir okkur ráð­herra sem aðeins virð­ist vilja fylgja eigin villu­ljósi,“ sagði Edward.

Hann sagði einnig til ferli fyrir þessi mál í okkar kerfi, stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd ætli að fara ofan í saumana á þessu og umboðs­maður Alþingis fylli í allar eyður sem nefndin mögu­lega skilur eftir.

„Já kæru félagar, það hitnar undir Sigríði Á Andersen og til að þetta eld­ist nú allt vel og brenni ekki, er betra að hækka hit­ann rólega,“ sagði Edward.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vinstrigræn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár