Guðrún Ögmundsdóttir í prófkjör Samfylkingarinnar

Guðrún Ögmunds­dóttir fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi og alþing­is­maður gefur kost á sér í for­vali Sam­fylk­ing­ar­innar.

Guðrún Ögmundsdóttir
Guðrún Ögmunds­dóttir Mynd: Aðsend.

Guðrún Ögmunds­dóttir fyrr­ver­andi alþing­is­maður og borg­ar­full­trúi hefur ákveðið að gefa kost á sér í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar.

Í sam­tali við Kjarnann seg­ist Guðrún stefna á 5. - 8. sæti list­ans. Forval flokks­ins fer fram þann 10. febr­úar næst­kom­andi.

Unfan­farið hefur Guðrún starfað sem tengiliður vegna vist­heim­ila hjá dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Guðrún var vara­borg­ar­full­trúi í Reykja­vík árin 1990 til 1992 og borg­ar­full­trúi frá þeim tíma til árs­ins 1998. Guðrún var þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á árunum 2003 til 2007 og er menntuð í félags­fræði og félags­ráð­gjöf auk fjöl­miðla­fræði.

Guðrún hefur starfað af félags­málum með marg­vís­legum hætti í gegnum árin í hinum ýmsu ráðum og nefndum víðs vegar í sam­fé­lag­inu.

Hún seg­ist alltaf hafa haft mikið áhuga á borg­ar­mál­unum sem og áhuga á þeim sem minnst mega sín. „Ég finn að það þarf að gera eitt­hvað, það eru svo margir ein­mana og við þurfum að fara að hugsa þessi mál upp á nýtt,“ segir Guðrún.

Guðrún seg­ist hafa fengið mikið af áskor­unum, ekki aðeins frá fólki úr Sam­fylk­ing­unni heldur frá fólki víða að í sam­fé­lag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfylking

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár