Niðurfelling LÖKE-málsins staðfest

Bogi Nilsson settur rík­is­sak­sókn­ari hefur stað­fest ákvörðun setts hér­aðs­sak­sókn­ara í LÖKE-mál­inu svo­kall­aða, gegn Öldu Hrönn Jóhann­es­dóttur, þá aðal­lög­fræð­ingi lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, að fella niður málið.

Alda Hrönn Jóhannesdóttir
Alda Hrönn Jóhann­es­dóttir Mynd: RÚV/skjáskot

Bogi Nilsson settur rík­is­sak­sókn­ari hefur stað­fest ákvörðun setts hér­aðs­sak­sókn­ara í LÖKE-mál­inu svo­kall­aða að fella niður málið. Um er að ræða kæru tveggja fyrr­ver­andi lög­reglu­manna á hendur Öldu Hrönn Jóhann­es­dóttir, þá aðal­lög­fræð­ingi lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Menn­irnir kærðu Öldu fyrir að hafa mis­beitt valdi í starfi sínu hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum við rann­sókn LÖKE-máls­ins, en kröfð­ust þess nú að þeirri ákvörðun hér­aðs­sak­sókn­ara að ákæra Öldu ekki yrði felld úr gildi, að hún verði ákærð og svipt emb­ætti og að fram­kvæma ætti nauð­syn­legar rann­sókn­ar­að­gerðir í mál­inu.

Í nið­ur­stöðu Boga kemur fram að rann­sóknin, sem Alda bar ábyrgð á og fram­kvæmd var af lög­regl­unni með vit­und og vilja lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum, hafi verið óeðli­leg eða í and­stöðu við laga­fyr­ir­mæli, enda háð að höfðu sam­ráði við emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara eða sam­kvæmt fyr­ir­mælum þess.

Ann­markar á upp­hafi rann­sókn­ar­innar á hendur kærend­unum, fyrr­ver­andi lög­reglu­mönn­unum, sem Alda beri aðal­lega ábyrgð á þykja ekki slíkir að það geti varðað við lög, en sak­irnar eru þar að auki fyrndar.

Í nið­ur­stöð­unni eru tekin dæmi um ann­marka á rann­sókn­inni við upp­haf hennar í fram­haldi af mót­töku ábend­ingar um meinta hátt­semi lög­reglu­mann­anna og vina þeirra og við mót­töku rann­sókn­ar­gagn­anna sjálfra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

löggæsla

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár