Komin fram úr árinu 2007 í launum

Laun hafa hækkað veru­lega á síð­ustu árum. Í Tíund, frétta­bréfi Rík­is­skatt­stjóra, er fjallað um þessa þróun og á það bent að upp­hæða launa­greiðslna sé nú

Launa­greiðslur voru á síð­asta ári hærri að raun­virði en árið 2007. Þetta er í fyrsta skipti sem það ger­ist, frá því tíma­móta­ári, þegar efna­hags­bólan fyrir hrun fjár­mála­kerf­is­ins náði hámarki.

Í grein Páls Kolbeins rekstr­ar­hag­fræð­ings hjá Rík­is­stjóra, í frétta­bréf­inu Tíund, kemur fram að fyr­ir­tæki og stofn­anir hafi greitt 1.231 millj­arða króna í laun í fyrra, en það er um 64,5 millj­örðum meira en árið 2007, sé raun­virði launa­greiðslna borið saman.

Í umfjöllun um skrif Páls í Tíund, í Frétta­blað­inu í dag, kemur fram að raun­virði launa hafi rýrnað mikið eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins en allt frá árinu 2010 hafa launa­greiðslur farið hækk­andi. Frá þeim tíma hefur end­ur­reisn íslensks efna­hags­lífs­ins verið afar kröftug og hag­vaxt­ar­skeiðið ekki síst borið uppi af miklum vexti ferða­þjón­ust­unnar. Að raun­virði hafa launa­greiðslur hækkað um 36 pró­sent á síð­ustu sex árum.

Á þessu ári er gert ráð fyrir að ferða­þjón­ustan skili þjóð­ar­bú­inu um 535 millj­örðum króna, eða um 40 pró­sent af öllum gjald­eyr­is­tekjum þjóð­ar­búss­ins. Sá mikli vöxtur sem hefur verið innan hennar á und­an­förnum árum hefur ýtt undir auknar launa­greiðslur, eins og gefur að skilja.

Ríki og sveit­ar­fé­lög greiddu hæstu fjár­hæð­ina í laun eða ríf­lega 301 millj­arð sem er um 24,5 pró­sent launa í land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár