Lárus Welding: Kaup Jóns Ásgeirs og félaga í Glitni voru valdapólitík

Fyrr­ver­andi for­stjóri er á meðal helstu heim­ild­ar­manna í nýrri bók um tím­ann í við­skipta­líf­inu og stjórn­málum frá ald­ar­mótum og fram að hruni. Þar greinir hann m.a. frá sam­skiptum sem áttu sér stað í aðdrag­anda hruns­ins.

Lárus Welding varð forstjóri Glitnis einungis 31 árs að aldri. Hann náði að gegna starfinu í rúmt ár.
Lárus Welding varð for­stjóri Glitnis ein­ungis 31 árs að aldri. Hann náði að gegna starf­inu í rúmt ár. Mynd: Glitnir

Lárus Welding, fyrr­ver­andi banka­stjóri Glitnis, segir að Jón Ásgeir Jóhann­es­son og við­skipta­fé­lagar hans sem eign­uð­ust ráð­andi hlut í bank­anum fyrir hrun, hafi ekki haft neinn áhuga á banka­rekstri. Þeir hafi náð stjórn á Glitni „Af því að þeir gátu það“. Kaupin hafi snú­ist um valdapóli­tík á Íslandi öðrum þræði. Þetta er haft eftir Lárusi í bók Björns Jóns Braga­sonar, „Í liði for­sæt­is­ráð­herra eða ekki?“, sem nýverið kom út.

Lárus var for­stjóri Glitnis frá 1. maí 2007 og þangað til að bank­inn féll ásamt hinum stóru íslensku bönk­unum í byrjun októ­ber 2008. Hann var ráð­inn í starfið eftir að Jón Ásgeir og helstu við­skipta­fé­lagar hans náðu yfir­ráðum yfir Glitni á vor­mán­uðum 2007. Áður hafi Lárus verið stjórn­andi hjá Lands­bank­anum í London, og m.a. séð um lána­við­skipti til útrás­ar­verk­efna Jóns Ásgeirs og tengdra aðila þar í landi. Lárus var 31 árs þegar hann tók við starf­inu.

[adspot]Lárus hefur verið ákærður í nokkrum hrun­málum á und­an­förnum árum en hefur lítið sem ekk­ert tjáð sig opin­ber­lega um það sem gerð­ist í aðdrag­anda banka­hruns­ins síðan að hann mætti í við­tal í Silfri Egils 21. sept­em­ber 2008.

Lárus er hins vegar einn helsti heim­ild­ar­maður Björns Jóns í bók­inni „Í liði for­sæt­is­ráð­herra eða ekki?“ og kemur þar fram sem nafn­greind heim­ild. Á mörgum stöðum í frá­sögn­inni er vitnað í við­tal höf­undar við Lárus.

„Hann fokkar okkur upp“

Lárus lýsir til að mynda nokkuð ítar­lega sinni hlið af því sem gerð­ist í aðdrag­anda þess að ríkið reyndi að þjóð­nýta Glitni, sem mark­aði upp­haf hins form­lega banka­hruns. Á einum stað er haft eftir Lárusi að þegar Glitnir hafi leitað til Seðla­banka Íslands eftir fyr­ir­greiðslu, vegna láns sem var á gjald­daga um miðjan októ­ber en Glitnir átti ekki fyrir, hafi Þor­steinn Már Bald­vins­son, þáver­andi stjórn­ar­for­maður bank­ans, haft trölla­trú á að þær umleit­anir myndu lán­ast vel.

Jón Ásgeir, einn helsti eig­andi Glitnis, var hins vegar á öðru máli og hafði enga trú á að Davíð Oddsson, þáver­andi for­maður banka­stjórnar Seðla­bank­ans, myndi vinna með Glitn­is­mönnum. „Ekki séns, hann fokkar okkur upp,“ segir Lárus að Jón Ásgeir hafi sagt um Davíð. Þá hafði lengi andað köldu á milli Jóns Ásgeirs og Davíðs vegna Baugs­mála og harðrar opin­berar gagn­rýni hvors á hinn.

Tók „hárblásarann“ á Davíð

Lárus greinir einnig frá því að kvöldið 28. sept­em­ber 2008, sem var sunnu­dags­kvöld, hafi Davíð hringt í Þorstein Má og boðað stjórn Glitnis ásamt helstu hlut­höfum á fund í Seðla­bank­anum. Því hafi verið hafnað en að lokum hafi náðst saman um að Þor­steinn kæmi til fund­ar­ins ásamt Lárusi og tveimur lög­mönnum. Sá fundur hófst klukkan hálf ell­efu að kvöldi og fór fram í fund­ar­her­bergi Seðla­bank­ans sem kallað er „Batt­er­íið“. Við­staddir voru m.a. Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Davíð. Geir bauð gest­ina vel­komna en gaf svo Davíð orðið. Hann til­kynnti að Glitnir myndi fá 600 milljón evra fyr­ir­greiðslu gegn því að rík­is­sjóður tæki til sín 75 pró­sent eign­ar­hlut í bank­anum. Í bók­inni segir að til­kynn­ingin hafi komið Glitn­is­mönnum í opna skjöldu. „Eftir að ákvörð­unin hafði verið til­kynnt var gert stutt hlé svo Glitn­is­menn gætu ráðið ráðum sínum. Að fund­ar­hléinu loknu brást Þor­steinn Már ókvæða við til­lög­unni og „tók hár­blásar­ann“ á Davíð, eins og Lárus Welding orðar það.“

Í bók­inni er einnig sagt frá þeim tíma þegar Jón Ásgeir var að bæta við hlut sinn í Glitni. Þá seg­ist Lárus Welding hafa sagt við hann: „Jón, ekki kaupa hlut í banka nema þú hafir áhuga á banka­rekstri.“ Í bók­inni segir að sá áhugi hafi ekki verið til staðar og haft er eftir Lárusi að kaup í bank­anum hafi snú­ist um valdapóli­tík á Íslandi öðrum þræði. Jón Ásgeir og félagar hans hafi náð stjórn á Glitni „af því að þeir gátu það“. Kaupin í bank­anum hafi hins vegar ekki verið mjög djúpt hugsuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hrun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár