Biskup fær 21 prósent launahækkun

Kjararáð hefur fært bisk­upi og prestum ríf­lega launa­hækkun í nýjum úrskurði sínum.

Samkvæmt nýbirtum

úrskurði kjara­ráðs

hækka laun bisk­ups, Agnesar Sig­urð­ar­dóttur, um tugi pró­senta. Í úrskurð­inum kemur fram að biskup skuli hafa tæp­lega 1,2 millj­ónir í mán­að­ar­laun auk 40 fastra yfir­vinnu­ein­inga. Ein ein­ing er 9.572 krónur og laun bisk­ups því eftir hækkun alls 1.553.359 krónur á mán­uði.


Í úrskurði kjara­ráðs segir: „Með ákvörðun kjara­ráðs frá 19. júní 2007 voru laun bisk­ups Íslands felld að sömu launa­töflu og gilti fyrir aðra emb­ætt­is­menn sem kjara­ráð ákveður laun, en áður heyrði undir Kjaradóm að ákveða bisk­upi laun. Frá þeim tíma hafa laun hans tekið breyt­ingum í sam­ræmi við almennar ákvarð­anir kjara­ráðs. Biskup Íslands er æðsti emb­ætt­is­maður hinnar stjórn­ar­skrár­bundnu íslensku þjóð­kirkju. Við ákvörðun launa­kjara hans er höfð hlið­sjón af því hlut­verki hans og starfs­skyldum sam­kvæmt lögum og starfs­reglum sem og eðli og umfangi starfs­ins. Þá er einnig tekið mið af því inn­byrðis sam­ræmi sem kjara­ráði ber að gæta og áður er gerð grein fyrir.“

Hækkunin er aft­ur­virk til 1. jan­úar 2017, sam­kvæmt úrskurð­inum. Um næstu mán­að­ar­mót mun biskup því fá ein­greiðslu fyrir síð­asta árið en sú upp­hæð nemur 3,3 millj­ónir króna.

Kjararáð tók kjör bisk­ups til skoð­unar eftir að biskup sendi bréf til ráðs­ins þess efnis, en biskup krafð­ist betri launa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár