Þúsundir verða fyrir áhrifum vegna verkfallsins

Nú er reynt til þrautar að ná samn­ingum milli flug­virkja og Icelandair. Athuga­semdum rignir yfir Icelandair vegna verk­falls­ins.

Verkfall flug­virkja hjá Icelandair, sem hófst í gær klukkan 06:00, hafði áhrif á ferða­til­högun þús­unda far­þega í gær, og er fyr­ir­sjá­an­legt að það muni halda áfram, á meðan ekki næst að semja um kaup og kjör.

Fundið var slitið á fjórða tím­anum í nótt án nið­ur­stöðu.

Gunnar R. Jónsson, for­maður samn­inga­nefndar flug­virkja, sagði við mbl.is í gær­kvöldi að það yrði setið við samn­inga­borðið í löngum lotum, en að öðru leyti var ekk­ert hægt að segja um fram­gang­inn í við­ræð­unum.

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, hefur sagt kröfur flug­virkja óásætt­an­legar en SA hefur metið þær á um 20 pró­sent hækkun launa. Þetta telja SA óboð­legar kröfur og að það sé ekki hægt að verða við þeim.

Flug­virkjar hafa ekki viljað tjá sig um kröf­urnar að öðru leyti en því, að þeir hafa lítið gefið fyrir mál­flutn­ing Samtaka atvinnu­lífs­ins og segja hann ekki svara­verðan.

Verk­fallið nær til um 260 flug­virkja, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Icelandair þá verða um tíu þús­und far­þegar fyrir áhrifum vegna verk­falls­ins á hverjum degi sem það varir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár