Ferðaþjónustan og byggingariðnaður soga til sín starfsfólk

Upp­gang­ur­inn í efna­hags­líf­inu kemur vel fram í tölum Hagstofu Íslands um þróun á vinnu­mark­aði. Flest störfin verða til í bygg­ing­ar­iðn­aði og ferða­þjón­ustu.

Laun­þegum fjölgar milli ára í bygg­ing­ar­iðn­aði og ferða­þjón­ustu, en ekki eins hratt og áður. Laun­þegum fækkar í sjáv­ar­út­vegi, að því er kemur fram í umfjöllun Hagstofu Íslands. Í októ­ber 2017 voru 2.660 launa­greið­endur og um 12.900 laun­þegar í bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð og hafði laun­þegum fjölgað um 1.500 (14%) sam­an­borið við októ­ber 2016. Í októ­ber voru 1.783 launa­greið­endur og um 26.800 laun­þegar í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu og hafði laun­þegum fjölgað um 1.700 (7%) á einu ári. Á sama tíma­bili hefur laun­þegum í heild fjölgað um 6.500 (4%),“ segir í frétt Hagstofu Íslands.

Innan sjáv­ar­út­vegs voru 8.900 starf­andi í októ­ber, en innan þess sem Hag­stofan skil­greinir sem skap­andi greinar, voru um 9.200 starf­andi. Nánari lýs­ingar á skipt­ingu starfa eftir greinum má sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár