Það er á ábyrgð vinnuveitanda að uppræta áreitni á vinnustað

Samtök atvinnu­lífs­ins segja að vinnu­veit­endur verði að taka ábyrga afstöðu og láta brota­þola alltaf njóta vafans.

Samtök atvinnu­lífs­ins segja að vinnu­veit­endur verði að taka á áreitni og ofbeldi af kyn­ferð­is­legum toga. Þeir beri ábyrgð á því að bregð­ast við og þar sér grund­vall­ar­at­riði að láta brota­þola njóta vafans.

#Metoo átakið hefur opnað upp á gátt umræðu um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi gagn­vart konum, en konur í flugi og fjöl­miðlum, bætt­ust í gær í hóp stétta þar sem konur hafa deilt sögum þar sem þær hafa verið beittar ofbeldi og ósæmi­legri hegðun.

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA, sagði í við­tali við RÚV í gær að það ætti að vera for­gangs­mál hjá öllum vinnu­stöðum að tryggja öryggi starfs­manna, og hluti af því snýr að því að konur séu ekki áreittar eða beittar öðru ofbeldi.

Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins er áréttað að sú bylgja sem hefur komið fram að und­an­förnu sýni að vand­inn sé stærri nú en áður var talið. „Áreitni og ofbeldi af kyn­ferð­is­legum toga hefur lengi verið dulið vanda­mál á fjöl­mörgum vinnu­stöðum. Þolendur hafa átt erfitt með að greina frá brotum sem þeir hafa orðið fyrir enda oft í erf­iðri stöðu gagn­vart yfir­mönnum og sam­starfs­fólki. Bylgja vitn­is­burða und­an­farið um kyn­ferð­is­áreitni og ofbeldi hefur leitt í ljós að vand­inn er stærri og brota­hegð­unin algeng­ari en áður var talið. Það er frum­skylda atvinnu­rek­enda að senda skýr skila­boð til starfs­manna sinna um að ein­elti, áreitni og ofbeldi verði ekki liðið,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Samtökin segja að vinnu­staðir verði að skoða vinnu­staða­menn­ing­una á hverjum stað, og meta hvernig sé best að bregð­ast við. „Þá er mik­il­vægt að stjórn­endur skoði vinnu­staða­menn­ingu á sínum vinnu­stöðum og hvernig er hægt að bæta hana, draga úr hættu á sær­andi fram­komu og að mál­efni þolenda verði í for­gangi þegar brot koma upp. Ein meg­in­skylda vinnu­veit­anda er að tryggja starfs­mönnum öruggt og heilsu­sam­legt vinnu­um­hverfi. Fyr­ir­tækjum ber að gera áhættu­mat til að greina þá áhættu sem getur verið fyrir hendi. Í mat­inu skal koma fram til hvaða aðgerða fyr­ir­tækið hyggst grípa til komi fram kvörtun, ábend­ing eða rök­studdur grunur um brot,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár