Aðförin að Steinunni Valdísi smánarblettur á stjórnmálasögu landsins

Fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar tal­aði um hót­anir í Silfrinu um helg­ina sem hún fékk vegna starfa sinna í stjórn­málum. Birgitta Jóns­dóttir og Logi Ein­ars­son segja bæði að aðförin að henni sé ljótur blettur á stjórn­mála­sögu Íslands.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir Mynd: Skjáskot/RÚV

Birgitta Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, segir í Facebook-færslu að aðförin að Stein­unni Valdísi Ósk­ars­dóttur sé smán­ar­blettur á stjórn­mála­sögu Íslend­inga og vísar þar í mót­mæli sem stóðu fyrir framan heim­ili hennar í fimm vikur árið 2010.

Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði af sér þing­mennsku árið 2010 eftir að hópur mót­mæl­enda hafði safn­ast saman fyrir framan heim­ili hennar á hverju ein­asta kvöldi og kraf­ist þess að hún segði af sér þing­mennsku vegna styrkja fyrir próf­kjörs­bar­áttu. Fleiri stjórn­mála­menn á borð við Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur og Guðlaug Þór Þórð­ar­son urðu einnig fyrir aðkasti mót­mæl­enda af sömu ástæðum.

[adspot]

Steinunn Valdís greindi frá og tal­aði um hótun þess efnis að beita hana kyn­ferð­is­legu ofbeldi, vegna starfa hennar í stjórn­málum í Silfrinu á RÚV um helg­ina. Hún þakk­aði þeim konum sem hafa haft hug­rekki til að stíga fram og segja sína sögu.

Fengið morðhótanir og talin réttdræp

Birgitta segir jafn­framt í færsl­unni að hún vilji halda því að haga að hún hafi alltaf verið því mót­fall­inn að fólk mót­mæli fyrir utan heim­ili fólks. „Ég lét þá sem stóðu fyrir því heyra það á sínum tíma. Það er ekk­ert sem rétt­lætir slíka aðför að frið­helgi fólks alveg sama hvar í flokki það stendur. Á Íslandi er aðgengi að stjórn­mála­fólki með því besta sem ger­ist í heim­inum vegna hefða og fámennis,“ segi hún í færsl­unni. Ætla má að ástæðan fyrir skrifum Birgittu sé gömul frétt mbl.is frá árinu 2013 þar sem Stein­unn Val­dís sagði að Birgitta hefði hvatt fólk til að fara að heim­ili henn­ar vorið 2010 og krefj­ast af­sagn­ar.

Birgitta segir enn fremur frá því að hún hafi lent í því að hafa fengið yfir sig morð­hót­anir reglu­lega og verið talin rétt­dræp. Hún segir að ráð­ist hafi verið á hana í mat­vöru­verslun, að eldri kona hafi klesst hressi­lega á hana vilj­andi með inn­kaupa­kerru og hrópað að henni níð í við­ur­vist sonar hennar. Það sé þó ekki sam­bæri­legt því sem Steinunn Valdís varð fyrir.

„Ég eins og fleiri skamm­ast mín fyrir að hafa ekki gert meira til að standa með henni á sínum tíma og bið hana afsök­unar á því,“ segir Birgitta.

Hvöttu til nauðgana

Steinunn Valdís sagði í Silfrinu um helg­ina að þjóð­þekktir nafn­greindir menn hefðu hvatt aðra menn til að fara heim til hennar og nauðga henni. „Það eru núna tæp­lega átta ár síðan ég lenti í mínu ofbeldi vil ég segja, og ég hugsa stundum til baka og svona kemst að þeirri nið­ur­stöðu að kannski hafi ég ekki brugð­ist rétt við á sínum tíma vegna þess að það ofbeldi átti nátt­úru­lega ekk­ert að líð­ast.“

„Þeir hvöttu til nauð­gana á mér vegna starfa minna í stjórn­málum og vegna þeirra mála sem ég hafði barist fyrir sér­stak­lega í borg­ar­stjórn og ég hugsa stundum, hvernig sam­fé­lagið hefði brugð­ist við og hvernig lög­reglan hefði brugð­ist við ef að það hefði komið ákall frá þessum mönnum um að fara heim til Dags B. Egg­erts­sonar og nauðga honum,“ sagði Steinunn Valdís. Hún telur jafn­framt að öðru­vísi hefði verið brugð­ist við í þeim aðstæðum.

Hvernig hefði flokkurinn getað sýnt henni meiri stuðning?

Steinunn Valdís tal­aði um málið í fyrsta skiptið opin­ber­lega í Silfrinu. Hún sagð­ist ekki hafa haft kjark til þess hingað til. „Ég finn það bara þegar ég sit hérna og við erum að tala um þetta, ég hef ekk­ert talað um þetta opin­ber­lega, að ég fer næstum því bara að gráta. Þið verðið bara að afsaka. Þetta er bara þannig. Ég vil bara þakka öllum þessum konum sem hófu þessa veg­ferð, því þetta skiptir máli,“ sagði hún.

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, tekur í sama streng og Birgitta og segir í færslu á Facebook að aðförin að Stein­unni Valdísi sé ljótur blettur á íslenskum stjórn­málum eft­ir­hrunsár­anna.

Hann seg­ist ætla að beita sér fyrir því að Sam­fylk­ingin skoði með hvaða hætti flokk­ur­inn hefði getað sýnt henni meiri stuðn­ing.

„Það má ekki líða ofbeldi af þessum toga og bæði ein­stak­lingar og flokkar þurfa að bregð­ast við slíku af festu,“ segir hann í færsl­unni.

„Dugar ekkert annað en tveir harðir“

Töluvert var fjallað um blogg­færslu Egils „Gillzeneggers" Ein­ars­sonar frá árinu 2007 þar sem hann hvatti til kyn­ferð­is­of­beldis á Stein­unni Valdísi og fleiri konum.

„Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir, alþing­is­maður. Steinunn er port­konan sem vildi breyta orð­inu ráð­herra í ráð­frú fyrir konur. Steinunn þarf lim og það strax. Á hana Stein­unni Valdísi dugar ekk­ert annað en lág­mark tveir harðir og munu Buka og Yao taka þetta verk­efni að sér. Frétta­stofan ákvað að gefa Ásgeiri Kol­beins­syni frí í þetta skiptið, en Frétta­stofan vill ekki hafa það á sam­visk­unni að Ásgeir finn­ist hang­andi í ljósakrónu í vest­ur­bænum.“

Mikil reiði í samfélaginu á þessum tíma

Mótmælin fyrir framan hús Stein­unnar Valdísar stóðu yfir í fimm vikur og sagði hún í fyrr­nefndu við­tali á mbl.is að for­stjóri Matís, Sveinn Mar­geirs­son og bræður hans Hlaupa­garp­ar hafi verið fyr­ir fram­an glugg­ana hjá henni í þrjár vik­ur. „Þar var einnig Björn Þorri Vikt­ors­son lög­maður kvöld eft­ir kvöld vel klædd­ur í kraft­galla með marga af sín­um skjól­stæð­ing­um. Til við­bót­ar voru marg­ir skjól­stæð­ing­ar Útvarps Sögu o.fl.,“ sagði hún. Sveinn Mar­geirs­son for­stjóri Matís sagð­ist sjá mikið eftir þátt­töku sinni í mót­mæl­unum á sínum tíma í við­tali við Eyjuna í maí 2014.

Aðspurður um þátt­töku sína í mót­mæl­unum sagði Sveinn að skilj­an­lega hefði mikil reiði ríkt í sam­fé­lag­inu á þessum tíma. Hann sagði enn­fremur að hann hefði ekki átt aðild að máli í öll þau skipti sem mót­mæli áttu sér stað á heim­ilum stjórn­mála­manna. Hann bætti því við að í hita leiks­ins hefði ekki verið ekki verið hugsað út í að verið væri að gera atlögu að einka­heim­ili fólks. Verst hefði honum þótt sá mis­skiln­ingur að mót­mælin hefðu beinst sér­stak­lega að konum.

„Ég hef beðið hana afsök­unar. Mér finnst leið­in­legt ef fólk heldur eitt­hvað rang­lega um mig en ég ætla ekki að vera í ein­hverri póli­tík með það,“ sagði Sveinn og bætti við að þetta hefði ekki verið það sem hann er mest stoltur af í líf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár