Töluverð óvissa um framvindu efnahagsmála vegna kjaradeilna

Í nýrri þjóð­hags­spá Hagstofu Íslands er gert ráð fyrir því að hag­vaxt­ar­skeiðið muni halda áfram, en tölu­verð óvissa er þó í kort­unum.

Gert er ráð fyrir því í nýrri þjóð­hags­spá Hagstofu Íslands að það muni draga nokkuð úr hag­vexti á næstu árum, en þó verður staða efna­hags­mála með besta móti, sé horft til sögu­legrar reynslu. Atvinnu­leysi verður áfram lítið og ferða­þjón­ustan verður áfram verða eins og vítamín­sprauta fyrir hag­kerfið, en gert er ráð fyrir 3 til 5 pró­sent hag­vexti á ári næstu fimm árin.

Gert er ráð fyrir að með­al­talsat­vinnu­leysi á þessu ári verði 2,7 pró­sent, á næsta ári um 3 pró­sent og fari svo lítið eitt hækk­andi.

Eitt af því sem tölu­verð óvissa ríkir um, og nefnt er sér­stak­lega í þjóð­hags­spánni, er þróun launa lands­manna.

Launa­vísi­tala hefur hækkað mikið á síð­ustu árum. Hækkunin var 5,8 pró­sent árið 2014, 7,2 pró­sent árið 2015 og 11,4 pró­sent árið 2016 en launa­vísi­talan árið 2017 mun slaga í 7 pró­sent hækkun, að því er segir í þjóð­hags­spánni. 

Þetta eru miklar hækk­anir sé horft til ann­arra tíma­bila í hag­sög­unni, en eiga sér rætur í þeirri miklu við­spyrnu og þrótti sem ein­kennt hefur gang efna­hags­mála á Íslandi und­an­farin ár. „Þessi ár hafa heild­ar­ráð­stöf­un­ar­tekjur og kaup­máttur sömu­leiðis hækkað mikið vegna atvinnu­aukn­ingar og lít­illar verð­bólgu. Nú þegar öru­stu hækk­an­irnar virð­ast vera að baki er búist við að laun hækki minna næstu ár. Kaup­máttur heldur áfram að aukast ef laun hækka umfram verð­lag eins og spáð er. Langstærstur hluti laun­þega er bund­inn af kjara­samn­ingum ýmist til árs­loka 2018 eða út mars 2019, en all­stórir hópar laun­þega eru þegar með lausa samn­inga eða samn­inga sem eru við það að losna. Rík­is­starfs­menn í BHM félögum losn­uðu undan gerð­ar­dómi þann 31. ágúst síð­ast­lið­inn. Slit rík­is­stjórn­ar­sam­starfs í sept­em­ber leiddi til frest­unar á kjara­við­ræðum og er því alls óvíst hvorum megin við ára­mótin 2017–2018 nýir kjara­samn­ingar verði gerðir sem gætu gefið tón­inn fyrir þá samn­inga sem eftir fylgja. Óvissa um breyt­ingar launa árið 2019 verður fyr­ir­ferð­ar­meiri í efna­hags­horfum á næst­unni vegna þessa,“ segir í þjóð­hags­spánni.

Spá Hagstofu Íslands gerir ekki ráð fyrir að hróflað verði við gild­andi kjara­samn­ingum, en end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði í þeim gerir ráð fyrir end­ur­skoð­un­ar­mögu­leika í byrjun næsta árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár