Aðeins mun hægja á hjólum efnahagslífsins á næsta ári

Hag­vaxt­ar­skeiðið mun halda áfram á næsta ári en aðeins mun hægja á því, sé miðað við nýj­ustu hag­vaxt­ar­spá Hagstofu Íslands.

Útlit er fyrir kröft­ugan hag­vöxt á þessu ári, eins og því síð­asta, en að það hægi á gangi hag­kerf­is­ins á næstu árum. Þetta kemur fram í nýrri þjóð­hags­spá Hagstofu Íslands fyrir árin 2017 til 2023.

Gert er ráð fyrir að á þessu ári auk­ist lands­fram­leiðslan um 4,9 pró­sent, einka­neysla um 7,8 pró­sent og fjár­fest­ing um 8,8 pró­sent, sem telst mikið í sögu­legum sam­an­burði.

Á næsta ári er hins vegar reiknað með því að það hægi á hjólum efna­hags­lífs­ins. Er reiknað með því að hag­vöxtur verði 3,1 pró­sent, einka­neysla auk­ist um 5,3 pró­sent og fjár­fest­ing um 3,1 pró­sent.

Talið er að sam­neysla auk­ist um 2,2 pró­sent á þessu ári og 1,3 pró­sent á næsta ári. Árin 2019–2023 er gert ráð fyrir að vöxtur lands­fram­leiðslu verði í kringum 2,6 pró­sent, einka­neyslu­vöxtur minnki úr 3,6 pró­sent árið 2019 í 2,5 pró­sent árið 2023, fjár­fest­ing auk­ist um 2,1–3,9 pró­sent og sam­neysla nálægt 1,8 pró­sent á ári.

Spáin gerir ráð fyrir miklum vexti í opin­berri fjár­fest­ingu og íbúða­fjár­fest­ingu, enda mikil þörf á því að auka fram­boð fast­eigna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem vöxt­ur­inn er mestur og eft­ir­spurnin sömu­leiðis. „Spáð er miklum vexti íbúða­fjár­fest­ingar og opin­berrar fjár­fest­ingar en sam­dráttur verður meðal ann­ars í stór­iðju­tengdri fjár­fest­ingu árið 2018 og síðar. Við­skipta­jöfn­uður verður áfram jákvæður en versnar heldur þegar líður á spá­tím­ann. Gengi krón­unnar styrkt­ist framan af ári en gaf eftir þegar á leið. Tólf mán­aða verð­bólga er enn lág en búist er við að hún auk­ist nokkuð þegar áhrifa geng­is­styrk­ingar hættir að gæta. Íbúða­verð hefur hækkað skarpt frá miðju ári 2016 en búist er við að aukið fram­boð fast­eigna á næstu árum dragi úr spennu á íbúða­mark­aði,“ segir í þjóð­hags­spánni. 

Verð­bólga mælist nú 1,9 pró­sent, en hún hefur verið undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands í á fjórða ár. Þá er atvinnu­leysi með lægsta móti eða í kringum 3 til 4 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár