Greiðslur vegna atvinnuleysis og félagslegrar framleiðslu hríðlækka

Greiðslur vegna húsa­leigu­bóta, félags­legrar aðstoðar og styrki dróg­ust saman um 24,4 pró­sent milli áranna 2015 og 2016. Útgreiddar atvinnu­leys­is­bætur voru millj­arði lægri en árið áður og hafa ekki verið lægri frá hruni.

Atvinnuleysi hefur hríðfallið á Íslandi á undanförnum árum og þeim sem þurfa á félagslegri framfærslu að halda hefur fækkað mikið.
Atvinnu­leysi hefur hríð­fallið á Íslandi á und­an­förnum árum og þeim sem þurfa á félags­legri fram­færslu að halda hefur fækkað mikið. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Greiðslur sveit­ar­fé­laga vegna félags­legrar fram­færslu halda áfram að drag­ast saman ár frá ári. Í fyrra náum greiðslur sveit­ar­fé­laga í húsa­leigu­bætur, félags­lega aðstoð og styrki alls 2,6 millj­örðum króna. Það er 848 millj­ónum krónum minna en árið áður og sam­dráttur í slíkum greiðslum upp á 24,4 pró­sent.

Vinnu­mála­stofnun greiddi alls tæp­lega tíu þús­und ein­stak­lingum 7,8 millj­arða króna í atvinnu­leys­is­bætur á síð­asta ári. Til sam­an­burðar þá fengu alls tæp­lega 28 þús­und manns 23,2 millj­arða króna greiddar í atvinnu­leys­is­bætur árið 2009, þegar áhrif hruns­ins voru hvað mest hér­lendis. Á sjö árum lækk­uðu árs­greiðslur vegna atvinnu­leys­is­bóta því um 15,4 millj­arða króna og þeim sem þiggja slíkar bætur fækk­aði um lið­lega 18 þús­und.

Þetta kemur fram í nýjasta tölu­blaði Tíundar, frétta­blaðs rík­is­skatt­stjóra.

Lækkuðu um 848 milljónir á milli ára

Greiðslur sveit­ar­fé­laga vegna húsa­leigu­bóta, félags­legrar aðstoðar og styrkja juk­ust ár frá ári eftir hrun. Á milli áranna 2007 og 2010 hækk­uðu þessar greiðslur um 87,2 pró­sent og héldu áfram að hækka allt fram til árs­ins 2015. Það ár greiddu sveit­ar­fé­lögin 3,4 millj­arða króna í húsa­leigu­bæt­ur, félags­lega aðstoð og styrki. Það var 365 millj­ónum krónum minna en árið áður og greiðsl­urnar lækk­uðu því um 9,6 pró­sent á milli ára.

Og það var í fyrsta sinn í átta ár sem þessi liður lækk­aði.

Í fyrra sást tók þessi kostn­að­ar­liður svo stakka­skiptum. Greiðslur sveita­fé­laga í húsa­leigu­bætur, félags­lega aðstoð og styrki voru 2,6 millj­arðar króna árið 2016. Það er 848 millj­ónum krónum minna en árið áður, eða 24,4 pró­sent minna.

Á síð­asta ári þáðu alls 3.865 manns ofan­greinda styrki en þegar verst lét eftir hrunið, á árinu 2013, voru þeir sem þá fengu alls 5.724 tals­ins. Þeim hefur því fækkað um tæp­lega tvö þús­und á þremur árum.

Árlegur kostnaður vegna bóta lækkað um 15,4 milljarða

Atvinnu­leysi á Íslandi er mjög lítið. Samkvæmt Hagstofu Íslands var það 2,2 pró­sent á þriðja árs­fjórð­ungi árs­ins 2017 og ef ekki væri fyrir stór­kost­legan inn­flutn­ing á erlendum rík­is­borg­urum – þeim fjölg­aði um 6.630 á fyrstu níu mán­uðum árs­ins – væri atvinnu­leysið hér nei­kvætt. Þ.e. mun meira fram­boð væri af atvinnu en eft­ir­spurn.

Fyrir banka­hrun var atvinnu­leysi hér líka afar lítið. Árið 2007 fengu sam­tals 4.560 manns greiddar 4,9 millj­arða króna frá Vinnu­mála­stofnun í atvinnu­leys­is­bætur. Á árinu 2009 fór atvinnu­leysið mest upp í níu pró­sent á meðal Íslend­inga á aldr­inum 16-74 ára. Það ár fengu alls 27.639 manns greiddar atvinnu­leys­is­bætur upp á sam­tals 23,2 millj­arða króna.

Algjör við­snún­ingur hefur orðið í þessum efnum á und­an­förnum árum, enda efna­hags­á­standið hér­lendis batnað veru­lega og mik­ill hag­vöxtur verið ár eftir ár. Ekkert lát virð­ist á þeirri þróun en sam­kvæmt nýrri þjóð­hags­spá Hagstofu Íslands er gert ráð fyrir 4,9 pró­sent hag­vexti í ár og 3,1 pró­sent á næsta ári.

Árið 2015 greiddi Vinnu­mála­stofnun alls 8,8 millj­arða króna í atvinnu­leys­is­bæt­ur, sem er 2,2 millj­örðum króna minna en hún gerði árið áður. Alls fengu 10.864 greiddar bætur úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði á árinu 2015, sem er 16.774 færri en fengu bætur árið 2009. Í fyrra héldu þessar greiðslur áfram að drag­ast saman. Þá fengu alls 9.722 ein­stak­lingar tæp­lega 7,8 millj­arða króna í atvinnu­leys­is­bætur, eða millj­arði minna en árið áður. Það er sam­dráttur um 13 pró­sent milli ára og þeir sem fengu greiddar bætur í fyrra voru 1.142 færri en á árinu 2015.

Sam­tals hafi verið greiddir um 131 millj­arðar króna í atvinnu­leys­is­bætur frá hruni og fram til loka síð­asta árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár