„Fráleitt“ að vísa Chuong úr landi

Yfir­mat­reiðslu­maður á Nauthóli er afar óhress með Útlend­inga­stofnun, en nemi sem hefur verið á staðnum þarf að óbreyttu að fara úr landi. Hann segir sára vöntun á fag­manni eins og henni.

Björn Ingi Björns­son, yfir­mat­reiðslu­maður á Nauthóli, segir í til­kynn­ingu að sú ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar, að vísa Chuong Le Bui, mat­reiðslu­nema frá Víetnam, úr landi sé „frá­leit“ og í mót­sögn við þá miklu þörf sem sé fyrir faglært mat­reiðslu­fólk á Íslandi.

Hún er sögð nið­ur­brotin vegna máls­ins, og segir Björn það óásætt­an­legt að henni verði vísað úr landi.

Í til­kynn­ingu, þar sem hann rekur mál hennar ítar­lega, segir hann að hún sé efni­leg­asti nemi sem hann sé með í vinnu. Hann segir ákvörð­un­ina und­ar­lega þar sem nán­ast ómögu­legt sé að fá inn faglært starfs­fólk inn í mat­reiðslu­geir­ann þessi miss­erin. Því skjóti það skökku við að vísa henni úr landi, í miðju námi.

Hún er hálfnuð með lög­bund­inn náms­tíma í mat­reiðslu­tíma, en eftir laga­breyt­ingu Alþingis um síð­ustu ára­mót, þá fær hún ekki náms­manna­dval­ar­leyfi þar sem hún er í skil­greindu iðn­námi en ekki háskóla­námi eins og lögin gera ráð fyrir. Chuong á skyld­menni hér á landi og hefur því gott bak­land á Íslandi og Inga Lillý Brynjólf­dóttir lög­fræð­ingur hefur verið að vinna í hennar máli og hefur kært þessa ákvörðun útlend­inga­stofn­unnar. „Lögunum var breytt um síð­ustu ára­mót án þess að Iðan, Matvís eða aðrir fag­að­ilar sem koma að iðn­menntun hefðu verið látnir vita og iðn­menntun var hent út sem ástæðu fyrir náms­manna­dval­ar­leyfi. Það er algjör­lega út í hött að ein­hver sé búin að eyða 2 árum í nám og svo sé henni hent úr landi án þess að fá að klára námið sitt . Sér­stak­lega þar sem hún er nemi í grein þar sem sár­vantar fag­menn. Hún er okkar besti nemi að öðrum ólöst­uðum og nokkuð ljóst að hér er á ferð­inni efni í frá­bæra mat­reiðslu­konu. Mér finnst þessi ákvörðun útlend­inga­stofn­unnar frá­leit og sér­stak­lega í ljósi þess að Chuong hafði í febr­úar fengið fram­leng­ingu á náms­manna­leyf­inu sínu en núna á að senda hana heim. Í febr­úar var búið að breyta þessum lögum en þá fær hún samt dval­ar­leyfi en nú í haust þá er það aft­ur­kallað . Ég get ekki túlkað þessi lög öðru­vísi en að þau geng­is­fella okkar iðn­menntun eins og hún sé minna virði en háskóla­gráður og ég hall­ast helst að og í raun vona að hér sé um ein­hvers konar mis­tök við laga­breyt­ingu að ræða. Mistök sem eru samt grafal­var­leg eins og sjá má á þessu máli og geta haft gríð­ar­legar afleið­ingar fyrir fólk sem hefur hafið nám sitt hér með rétt­mætar vænt­ingar um að fá að ljúka því. Þarna er verið að neyða þessa ungu hæfi­leik­a­ríku konu til að kasta tveimur árum af ævi sinni út um glugg­ann. Tveimur árum þar sem hún hefur lagt mjög hart að sér við að ná sínum mark­miðum og upp­fylla sinn draum um að verða mat­reiðslu­kona,“ segir Björn í til­kynn­ingu sinni.

Hann segir enn fremur að það sé erfitt að verða mat­reiðslu­maður og það kosti mikla vinnu að byggja upp þekk­ingu í fag­inu. Ekki síst þess vegna þess ákvörð­unin und­ar­leg, og algjör­lega á skjön við þörf­ina í íslensku atvinnu­lífi. „Það vita allir sem það hafa reynt að það að læra að vera alvöru mat­reiðslu­maður kostar blóð,svita og tár. Starfs­námið er mjög erfitt og krefj­andi og margir sem hefja það gef­ast upp. Svo ekki sé minnst á að Chuong hefur ekki íslensku sem móð­ur­mál og hefur sótt nám­skeið utan vinnu til að fá betri grunn fyrir bók­lega­námið sem fer allt fram á íslensku. Stundar hún námið sitt af alúð sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Mennta­skól­anum í Kópavogi þar sem hún er nú á sinni fyrstu önn. Hún mætir vel og er til fyr­ir­myndar enda afar ein­beitt í sínu námi. Mér finnst und­ar­legt í ljósi þess að nán­ast er ómögu­legt að fá inn fag­lærða starfs­menn í þessa grein að okkur sé nú gert að rifta lög­bundnum náms­samn­ingi sem við gerðum til 4 ára og um leið missa frá­bæran starfs­kraft sem dýr­mætur tími og vinna hefur farið í að þjálfa og kenna eins og okkur er skylt að gera þegar ein­hver skráir sig í starfs­nám hjá okkur. Við á Nauthól leggjum mik­inn metnað í að útskrifa topp fag­menn frá okkur sem hafa víð­tæka reynslu og eru til­búnir í öll þau verk sem fag­lærður mat­reiðslu­maður þarf að kunna. Hefur Chuong stað­ist allar okkar kröfur og vænt­ingar um góða starfs­hætti og vinnu­brögð. Hún er okkar efni­leg­asti nemi og á fram­tíð­ina fyrir sér í þessu fagi og því er það glapræði að það skuli vera eyði­lagt með þess­ari brott­vísun og með þessum órétt­láta hætti,“ segir Björn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár