Tryggingargjaldið skattur sem dregur úr krafti fyrirtækja

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins segir að trygg­ing­ar­gjald sem legg­ist á launa

Þrátt fyrir að hafa lækkað um 0,94 pró­sentu­stig hefur trygg­inga­gjaldið hækkað um allt að þriðj­ung í krónum talið á und­an­förnum fjórum árum. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag, en sé mið tekið af fjár­laga­frum­varp­inu fyrir næsta ár, þá verða tekjur rík­is­sjóðs af trygg­in­ar­gjaldi 99 millj­arðar á næsta ári.

Verði frum­varpið sam­þykkt óbreytt mun gjaldið því hafa hækkað um 30 millj­arða króna frá árinu 2013.

Á sama tíma hefur atvinnu­leysi dreg­ist jafnt og þétt saman, en það mælist nú um þrjú pró­sent, og er vöntun á vinnu­afli í mörgum geirum atvinnu­lífs­ins.

„Trygg­inga­gjaldið var hækkað til þess að standa straum af auknu atvinnu­leysi í kjöl­far hruns­ins. Þetta var hugsað sem tíma­bundin aðgerð. Það mynd­að­ist hins vegar mikil tregða hjá rík­is­stjórn­inni að lækka gjaldið aftur þegar atvinnu­leysi minnk­aði. Gjaldið hefur ekki fylgt þróun atvinnu­leysis til lækk­unar,“ segir Ingólfur Bender, aðal­hag­fræð­ingur Samtaka iðn­að­ar­ins, í við­tali við Frétta­blaðið.

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, segir að trygg­inga­gjaldið geri það að verkum að fyr­ir­tæki með fjórtán starfs­menn greiði í reynd kostnað sem sam­svarar fimmt­ánda starfs­mann­inum.

Þetta bitni veru­lega á litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum, en þau eru meira en 70 pró­sent af hag­kerf­inu. „Trygg­inga­gjaldið er vondur skattur sem leggst á öll laun og dregur úr nýsköpun í atvinnu­líf­inu. Það bitnar sér­stak­lega á litlum fyr­ir­tækjum þar sem launa­gjöld eru yfir­gnæf­andi hluti rekstr­ar­gjalda, en lítil fyr­ir­tæki eru meg­in­upp­spretta nýrra starfa í efna­hags­líf­inu,“ segir Halldór Benjamín í við­tali við Frétta­blaðið.

Trygg­inga­gjaldið stendur nú í 6,75 pró­sentum og er gert ráð fyrir að það skili um 90 millj­örðum króna til rík­is­sjóðs í ár. Til sam­an­burðar var hlut­fallið 7,69 pró­sent árið 2013 en þá voru tekjur rík­is­sjóðs af gjald­inu tæpir 70 millj­arðar. Hæst var hlut­fallið 8,65 pró­sent árið 2011, eftir efna­hags­hrun en þá hækk­aði atvinnu­leysi snögg­lega og fór hæst í tæp­lega 10 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár