Silicor Materials hættir við sólarkísilverksmiðju

Frestur til áfrýj­unar á dóms­máli, er varð­aði umhverf­is­mat, rann út 17. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Þá þegar hafði verið tek­inn ákvörðun um að hætta við upp­bygg­ing­una.

Banda­ríska fyr­ir­tækið Silicor Mater­ials hef­ur fallið frá þrem­ur samn­ing­um við Faxa­flóa­hafn­ir sf. um upp­bygg­ingu sól­arkís­il­vers á Grund­ar­tanga. Verður því ekki af áform­um um upp­bygg­ingu sól­arkís­il­vers­ins.

Þetta stað­fest­ir hafn­ar­stjóri Faxa­flóa­hafna í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag, en Kjarninn greindi frá því í gær að hvorki fyr­ir­tækið né íslenska ríkið hefðu áfrýjað nið­ur­stöðu dóms Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem felldi úr gildi ákvörðun Skipu­lags­stofn­unar um að kís­il­verk­smiðjan þyrfti ekki að fara í umhverf­is­mati.

Í frétt Morg­un­blaðs­ins segir að Michael Rus­so, fram­kvæmda­stjóri Silicor Mater­ials Ice­land ehf., hafi sent hafn­ar­stjóra Faxa­flóa­hafna til­kynn­ingu í lok ág­úst sem fæli í sér að lóð­ar­samn­ing­ur, lóð­ar­leigu­samn­ing­ur og hafn­ar­samn­ing­ur, sem upp­haf­lega voru und­ir­rit­aðir í apríl 2015, taki ekki gildi. Bréfið var tekið fyr­ir á stjórn­ar­fundi Faxa­flóa­hafna sf. í gær, að því er segir í Morg­un­blað­inu.

Gísla Gíslason, hafn­ar­stjóri, segir að lengi hafi verið erf­ið­leikar með fjár­mögnun verk­efn­is­ins og nú sé útséð með það að verk­efnið gangi upp.

Áformin voru stór­huga en verk­efnið var kynnt þannig að 450 starfs­menn hefðu starfað í verk­smiðj­unni þegar hún væri kom­inn í full afköst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár